Sport

Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígin í NBA og ACB

Atli Arason skrifar
Hvað ætla Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors að gera gegn Boston Celtics?
Hvað ætla Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors að gera gegn Boston Celtics? Carlos Avila Gonzalez/San Francisco Chronicle

Úrslitaeinvígin í NBA og ACB hefjast í dag með tveimur stórleikjum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Ásamt því er nóg af golfi og 7. umferð Bestu-deild kvenna klárast.

Stöð 2 Golf

European Open á DP World Tour hefur göngu sína klukkan 11.00

Á slaginu 17.00 hefst US Women‘s Open mótið.

Stöð 2 Sport

Bestu mörkin eru á dagsrká klukkan 20.00 þar sem farið verður yfir allt það helsta úr 7. umferð deildarinnar.

Stöð 2 Sport 2

Fyrsti leikur í úrslitaeinvígi spænska ACB körfuboltans er í kvöld klukkan 19.50. Þar mætast Real Madrid og Baskonia.

Rétt eftir miðnætti, klukkan 00.30, hefst svo fyrsti leikur í úrslitaeinvígi NBA körfuboltans þar sem Golden State Warriors og Boston Celtics mætast.

Stöð 2 Sport 4

The Memorial Tournament á PGA mótaröðinni er á dagskrá klukkan 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×