Klara er aðeins önnur konan í sögu Þjóðhátíðar í Eyjum til þess að gefa út Þjóðhátíðarlag en sú fyrsta var Ragga Gísla, sem gaf út lagið Sjáumst þar fyrir Þjóðhátíð 2017.
„Ég samdi lagið ásamt minni bestu konu, uppáhalds meðhöfundi og samstarfskonu til næstum tuttugu ára, Ölmu Guðmundsdóttur. Vinur minn og annar uppáhalds, James Gladius Wong, sá um upptökustjórn og útsendingu,“ segir Klara.
Klara segist vona að fólk hlusti, njóti og syngi hástöfum með sér í brekkunni í Eyjum í lok júlí þegar Þjóðhátíð fer loksins fram eftir tveggja ára fjarveru.
„Þetta er söguleg þjóðhátíð á marga vegu en kannski helst því hún hefur ekki verið haldin í tvö ár. Mér fannst rétt að leyfa því að vera hluti af hjarta lagsins að síðustu tvö ár létu ekkert okkar ósnert.
Því ef við höfum lært eitthvað á þessum skrítnu tímum er það að við vitum aldrei hvað morgundagurinn býður okkur og hvað það er mikilvægt að njóta augnabliksins og elska hverja mínútu með fólkinu okkar.“
Samkvæmt Klöru er ein lína úr laginu sem segir það best:
„Ef þetta er síðasta nóttin sem við eigum hér, þá er mér sama svo lengi sem ég er með þér.“
Klara ræddi nánar um lagið við Lífið í maí síðastliðnum og viðtalið má finna hér.