Innlent

Gular viðvaranir á suður- og suðausturlandi á morgun

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Búist er við miklu hvassviðri í Öræfum á morgun.
Búist er við miklu hvassviðri í Öræfum á morgun. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á suður- og suðausturlandi á morgun, fimmtudag.

Í viðvöruninni segi að hvassviðri verði á svæðinu, um 10-18 metra á sekúndu. Búast megi við mjög snörpum vindhviðum um fjöll, staðbundið um 30 metra á sekúndu, einkum undir Eyjafjöllum og við Reynisfjall á suðurlandi og í Öræfum á suðausturlandi. 

Þetta geti verið varasamt fyrir ökutæki sem taki á sig mikinn vind en einnig hættulegt fyrir vegfarendur með aftanívagna. 

Viðvörunin gildir frá klukkan níu að morgni og fram til miðnættis. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×