Hátíðarhöldin voru víða í dag til heiðurs sjómanna og var nánast hvert einasta bæjarfélag með dagskrá í tilefni dagsins.
Í Reykjavík byrjaði dagurinn með lúðrablæstri skipa í höfninni, sjómenn voru heiðraðir í Hörpu og upp úr hádegi hófst skrúðganga með lúðrasveit í farabroddi þar sem sem stefnan var sett á Granda.
Heill hafsjór skemmtunar var þar að finna fyrir gesti og gangandi, nóg var af tónlistaratriðum, Lína Langsokkur lét sjá sig og BMX brós sýndu listir sínar. Þá var einnig klifurkeppni, fiskisúpusmakk, bátasýningar, og jafnvel koddaslagur.
Eitt atriði vakti þó sérstaka atriði, þar sem Æði strákarnir Patrekur Jamie, Binni Glee og Bassi Maraj lærðu að flaka fisk í tilefni dagsins. Patrekur endaði á að vinna keppnina þeirra á milli og sýndi fréttastofu hvernig þetta er gert, þó hann kúgaðist vissulega inn á milli.

„Oj, ég ætlaði ekki að fara í lifrina! eða hvað sem þetta,“ er sagði Patrekur meðal annars.
Af hverju ákváðuð þið að flaka fisk í tilefni dagsins?
„Ég var bara að reyna að finna mér mann, bara einhvern góðan sjómann,“ segir Bassi. Hann segir að illa hafi gengið í leitinni í dag en að öllum sé velkomið að senda honum ferilskrá og skattframtal.