Sport

Dagskráin í dag: Úrslitarimma á Spáni, Besta-deildin og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Skagamenn heimsækja KR-inga í Bestu-deild karla í kvöld.
Skagamenn heimsækja KR-inga í Bestu-deild karla í kvöld. Vísir/Vilhelm

Nóg er um að vera á sportrásum Stöðvar 2 þennan miðvikudaginn. Besta-deild karla snýr aftur eftir stutt landsleikjahlé og Real Madrid og Barcelona eigast við í úrslitum spænska körfuboltans.

Við hefjum þó leik fyrir framan tölvuskjáinn, en BLAST Premier í CS:GO verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport frá morgni tvil kvölds. Upphitun hefst klukkan 08:40 og seinasta útsending dagsins hefst klukkan 18:00.

Klukkan 17:55 er svo komið að fyrri leik dagsins í Bestu-deild karla þegar Íslandsmeistarar Víkings sækja ÍBV heim til Vestmannaeyja, en leikurinn verður sýndur á Bestu-deildar rásinni.

Klukkan 19:00 hefst svo bein útsending frá viðureign KR og ÍA á Stöð 2 Sport áður en Stúkan tekur við klukkan 21:15 og fer yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Annar leikur Barcelona og Real Madrid í úrslitum spænsku ACB-deildarinnar í körfubolta verður svo að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 klukkan 18:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×