Í kvikmyndinni „Ljósár“ þar sem uppruni persónu Bósa ljósárs úr „Leikfangasögu“ er rakinn sést ein kvenpersónan kyssa eiginkonu sína. Samtökin hinsegin fólks hafa fagnað sýnileika samkynhneigðs pars í Disney/Pixar-mynd.
Bandarískir íhaldsmenn hafa aftur á móti risið upp á afturlappirnar og mótmælt senunni. Þeir hafa nú um nokkurt skeið haft horn í síðu Disney eftir að fyrirtækið mótmælti nýjum lögum í Flórída sem banna kennurum að ræða kynhneigð eða kynvitund í skólum. Saka þeir Disney nú um að reka „samkynhneigðan áróður.“
Evans þykir ekki mikið til gagnrýni íhaldsmanna í Bandaríkjunum og víðar koma. „Sannleikurinn sá er að þetta fólk er bjánar,“ sagði hann við Reuters-fréttastofuna þegar hann var spurður út í deilurnar.
„Það verður alltaf til fólk sem er hrætt og ómeðvitað og sem reynir að halda í hlutina eins og þeir voru áður en það fólk deyr út eins og risaeðlurnar. Ég held að markmiðið sé að gefa þeim ekki gaum, halda áfram veginn og fagna þeim vexti sem gerir okkur að manneskjum,“ sagði leikarinn.
Disney hefur ítrekað átt í vök að verjast gegn nettröllum þegar afþreyingarefni fyrirtækisins skartar persónum sem eru hvorki hvítar né karlkyns. Þannig hefur leikkonan Moses Ingram setið undir kynþáttaníði á samfélagsmiðlum fyrir að hafa leikið aukahlutverk í Stjörnustríðsþáttunum „Obi-wan Kenobi“ sem nú eru í sýningu.