Innlent

Þremenningarnir sagðir hafa kært Vítalíu og Arnar fyrir tilraun til fjárkúgunar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Samkvæmt Fréttablaðinu hafa þremenningarnir fengið staðfest hjá ríkislögreglustjóra að engin kæra hafi borist á hendur þeim.
Samkvæmt Fréttablaðinu hafa þremenningarnir fengið staðfest hjá ríkislögreglustjóra að engin kæra hafi borist á hendur þeim.

Fréttablaðið segir Ara Edwald, Hreggvið Jónsson og Þórð Má Jóhannesson hafa kært Vítalíu Lazarevu og Arnar Grant til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar, hótanir og brot gegn friðhelgi einkalífsins.

Í frétt blaðsins segir að mennirnir þrír hafi leitað til lögmanns til að hafa milligöngu milli þeirra og Vítalíu og til að komast að því hvað hún vildi, eftir að skilaboð og bréfasendingar bárust fjölskyldum mannanna og samstarfsmönnum í viðskiptalífinu er vörðuðu ásakanir Vitalíu á hendur þremenningunum um kynferðisbrot í sumarbústað í október 2020.

Fréttablaðið segir að samkvæmt heimildum sínum hefðu Ari, Hreggviður og Þórður fengið þau skilabð frá Vítalíu og Arnari, í gegnum lögmanninn, að þeir þyrftu að greiða „alvöru fjárhæð“ til að ljúka málinu. Svo virðist sem hugmyndir hafi verið uppi um upphæð á bilinu 50 til 150 milljónir króna.

Í kærunni sem Fréttablaðið virðist hafa undir höndum segjast þremenningarnir hafa fengið það staðfest hjá ríkislögreglustjóra að ekkert mál gegn þeim sé til rannsóknar þar, það er að segja að Vítalía hafi ekki kært þá til lögreglu líkt og hún sagðist ætla að gera.

Þá segist blaðið hafa upplýsingar undir höndum sem sýna hvernig þáttur Arnars í atvikinu í sumarbústaðnum og í atburðarásinni í framhaldinu virðist breytast eftir því hvernig samband hans og Vítalíu stendur hverju sinni. 

Þannig er Arnar til að mynda sagður hafa deilt einkaskilaboðum frá Vítalíu með Sigurði G. Guðjónssyni þegar Vítalía talaði um hann með neikvæðum hætti en á öðrum tímum styðji þau hvort annað; hann með því að taka undir frásögn hennar og hún með því að berjast fyrir því að hann fái áfram að tilheyra gólfhópnum Stullarnir, sem mennirnir tilheyrðu allir. 

Athygli vekur að Fréttablaðið segir Eggert Þór Kristófersson, sem var nýlega sagt upp sem forstjóra Festar hf., hafa átt milligöngu um sáttatillögu í málinu, eftir að Vítalía setti sig í samband við hann. 


Tengdar fréttir

Víta­lía kærir Þórð, Ara og Hregg­við fyrir kyn­ferðis­brot

Vítalía Lazareva ætlar að kæra Þórð Má Jóhannesson, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Hún hefur bókað tíma hjá kærumóttöku lögreglu til að leggja kæruna fram. Vítalía hefur sakað þá um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi í sumarbústaðarferð í desember 2020. 

Vill ekki kannast við myndina sem hann birti af Vítalíu

Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segist ekki hafa tekið mynd af Vítalíu Lazarevu og birt í „story“ hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Vítalía hefur sakað nafntogaða og þjóðþekkta menn um kynferðisofbeldi.

Dagurinn sem fimm þjóð­þekktir karl­menn stigu til hliðar

Hún var hröð atburðarrásin í dag þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra. 

„Ég horfi í augun á honum og segi að ég vil þetta ekki“

Ung kona segist vera að leita réttar síns eftir að brotið hafi verið á henni af þremur eldri karlmönnum. Hún segir brotin hafa átt sér stað þegar hún var í ástarsambandi með vini þeirra. Hún hafi viljað þóknast honum og frosið þegar brotið hafi verið á henni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×