Innlent

Hádegisfréttir Bylgjunnar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á sínum stað klukkan tólf.

Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við fræðslustýru Samtakanna sjötíu og átta sem segir að fordómar gegn hinsegin fólki dreifist enn hraðar meðal ungs fólks á netinu. Stórt bakslag hafi orðið í réttindabaráttunni en tískubylgja sem snýst um að gelta á hinsegin fólk á almannafæri fer nú um samfélagsmiðla.

Þá heyrum við í fréttamanni okkar sem staddur er í Manchester en stóra stundin rennur upp hjá stelpunum okkar í dag þegar þær mæta Belgum á Evrópumótinu. Eftirvæntingin er algjör og mikil stemning í íslenskum áhorfendum sem ætla að sækja völlinn.

Penny Mordaunt, viðskiptaráðherra Bretlands, hefur ákveðið að gefa kost á sér í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Hún er talin líkleg til að hreppa embættið, en alls hafa níu gefið kost á sér sem vilja taka við af Boris Johnson fráfarandi leiðtoga.

Við fræðumst um deilu stærstu knattspyrnufélaga Evrópu við Knattspyrnusamband Evrópu, sem vill banna Ofurdeildina í fótbolta, greinum frá nýjustu vendingum í Úkraínu og skellum okkur á Símamótið í knattspyrnu sem klárast í dag.

Þetta og fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu klukkan tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×