Tónlist

Verður eiginlega alltaf stressaður áður en hann stígur á svið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Emmsjé Gauti kemur fram á Þjóðhátíð í ár . 
Emmsjé Gauti kemur fram á Þjóðhátíð í ár .  Daniel Thor

Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti er í hópi þess listafólks sem kemur fram á Þjóðhátíð í ár. Hann fór fyrst á hátíðina fyrir átta árum síðan og segist ætla að leggja allt í atriðið sitt í ár.

Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð.

Hvenær fórst þú fyrst á Þjóðhátíð?

Mig minnir að ég hafi farið fyrst á Þjóðhátíð árið 2014. Ég var einhvern veginn aldrei búinn að fara fyrir það og var með einhverjar fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvernig þetta væri. Síðan var þetta bara mesta snilld í heimi og ógeðslega gaman að fara á þetta svið. 

Ég held ég sé búinn að spila á Þjóðhátíð fimm eða sex sinnum og þetta er alltaf ákveðinn hápunktur.

Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa hátíð?

Það er bara stemning að koma sér þangað, vera í bílnum með strákunum og koma sér yfir. Síðustu svö skipti sem ég hef verið hef ég líka verið með fjölskyldugigg. Ég hef náttúrulega bara verið á föstudeginum en skemmtilegasta við þessa hátíð er hversu mikil stemning er og spennan í loftinu.

Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þú stígur á svið?

Gestir mega búast við algjörri klikkun. Ég var að gefa út nýtt lag 8. júlí sem ég er mjög spenntur að taka. Svo kom Malbik náttúrulega út seint 2019 og ég hef aldrei tekið það á Þjóðhátíð! Síðan bara ljósashow og klikkun og skemmtilegheit. Fólk má búast við því að ég fari all in með showið mitt.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt?

Lífið er yndislegt, við gerðum einhvern tíma remix af því og ætli það sé ekki bara uppáhalds Þjóðhátíðarlagið mitt.

Hvernig ætlar þú að undirbúa þig fyrir stóru stundina?

Bara finna eitthvað nett dress og senda mynd á konuna mína og systur mínar. Þær segja nei fyrst og finna eitthvað annað sem ég fer síðan í. Svo er það að fara bak við, hálftíma fyrir gigg, verða stressaður eins og ég er eiginlega alltaf fyrir öll show og síðan bara fara upp á svið og öskra einu sinni í micinn: Hvað segið þið gott motherfuckers og gera sturlað show.


Tengdar fréttir

Nýtt lag frá Emmsjé Gauta

Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti var að gefa út lagið HVAÐ ER AÐ FRÉTTA í dag. Það er mikið um að vera hjá Gauta í sumar en blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra nánar frá því.

Frumsýning á nýrri útgáfu af Lífið er yndislegt

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á glænýrri útgáfu af Lífið er yndislegt þar sem tónlistarfólkið Klara Elias og Hreimur syngja órafmagnaða útgáfu af þessu sögulega Þjóðhátíðarlagi.

Enn bætist í dagskrána á Þjóðhátíð

Tónlistarfólkið Jóhanna Guðrún, Ragga Gísla, Hreimur, Aldamótatónleikarnir og Herbert Guðmundsson bætast á sívaxandi lista þeirra sem munu koma fram á Þjóðhátíð í ár. Þetta verður frumraun Herberts í dalnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.