Viðskipti innlent

Hall­dór þarf ekki að leggja fram tölvu­pósta og greina­gerð

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Kröfuna gerði Björgólfur Thor á hendur Halldóri Kristmannssyni, vegna skaðabótamála sem hinn fyrrnefndi stendur í, í tengslum við fall Landsbankans árið 2008.
Kröfuna gerði Björgólfur Thor á hendur Halldóri Kristmannssyni, vegna skaðabótamála sem hinn fyrrnefndi stendur í, í tengslum við fall Landsbankans árið 2008. samsett

Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, þarf ekki að verða við dómkröfu Björgólfs Thors um að leggja fram tugi tölvupósta, greinargerð og önnur dómsskjöl í máli Alvogen gegn Halldóri. Björgólfur stendur nú í málaferlum vegna falls Landsbankans árið 2008 og gerði kröfuna í tengslum við þau skaðabótamál.

Þetta er niðurstaða Landsréttar í úrskurði sem féll síðastliðinn fimmtudag. Forsaga málsins er 600 milljóna króna skaðabótakrafa Vogunar hf. og fiskveiðihlutafélagsins Venusar hf. á hendur Björgólfi Thor vegna falls Landsbankans árið 2008. Björgólfur Thor hafði lagt fram ljósrit af frétt Ríkisútvarpsins í júní 2021 um yfirlýsingu sem Halldór sendi frá sér í tengslum við dómsmál Alvogens gegn Halldóri.

Fullviss um að gögnin yrðu notuð gegn honum

Kröfu sinni til stuðnings benti Björgólfur á að í yfirlýsingunni sé vísað til greinargerðar Halldórs í dómsmálinu gegn Alvogen, þar sem því er haldið fram að Róbert Wessman hafi falið lykilstjórnendum fyrirtækanna Alvogen og Alvotech, Halldóri þar á meðal, að undirbúa og leiða hópmálsókn gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni.

Taldi Bjögólfur að fyrrgreind greinagerð, auk tuga tölvupósta og annarra dómskjala skiptu máli í ljósi skaðabótakröfu Venusar og Vogunar og taldi að gögnin myndu leiða í ljós að Róbert og lykilstjórnendur Alvogen og Alvotech hafi haft fulla stjórn á hópmálsókn gegn Björgólfi Thor vegna falls Landsbankans.

Halldór Kristmannsson kvaðst hins vegar „fullviss um að ef hann afhendi sóknaraðila gögnin, þá verði reynt að nota það gegn honum,“ almennt og í framangreindu máli Alvogen gegn honum. Honum sé mikið í mun að tryggja að hann brjóti ekki hugsanlegar trúnaðarskyldur sínar gagnvart fyrrum vinnuveitanda.

Landsréttur taldi að af málsgögnunum mætti ráða að í umræddum skjölum væri hvergi vikið að Vogun hf. eða fyrirsvarsmönnum þess félags.  Fallist var á að Björgólfur hefði ekki fært fyrir því viðhlítandi rök að skjölin hefðu þýðingu fyrir sakarefni málsins þannig að rétt væri að leggja þá skyldu á Halldór að afhenda þau. Var kröfu Björgólfs því hafnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×