Lífið

Var vart hugað líf en hefur náð ó­trú­legum bata þökk sé fiskroði

Bjarki Sigurðsson skrifar
Pétur dvaldi á gjörgæslu í sextíu daga eftir slysið.
Pétur dvaldi á gjörgæslu í sextíu daga eftir slysið. Skjáskot/Kerecis

Pétur Oddsson brann verulega þegar hann lenti í vinnuslysi í Önundarfirði árið 2020. Hann var á gjörgæslu í sextíu daga eftir slysið og í dái í hundrað daga. Með aðstoð Kerecis sem framleiðir stoðefni úr fiskroði hefur Pétur náð ótrúlegum bata. 

Stór hluti líkami Péturs brann og var hann með mikla innvortis áverka eftir að hafa fengið í sig straum úr tengivirki. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Ísafjarðar og síðar til Reykjavíkur með sjúkraflugi.

Gert var að sárum Péturs með stoðefnum frá fyrirtækinu Kerecis. Kerecis vinnur efnin úr þorskroði og hefur Pétur náð umtalsverðum bata þökk sé efnanna.

Í myndbandi sem Kerecis gerði um Pétur og ótrúlegan bata hans segist hann ekki muna eftir slysinu og í rauninni ekki eftir mánuðunum á undan.

„Eina sem ég veit er hvað vinnufélagi minn sagði mér. Sem var þarna þegar slysið átti sér stað,“ segir Pétur.

Það var ekki fyrr en við komuna til Reykjavíkur sem læknarnir áttuðu sig á alvarleika ástands Péturs. Læknarnir á bráðamóttökunni sögðu eiginkonu Péturs að hann ætti mögulega ekki eftir að lifa af. 

Þegar Pétur var ekki lengur í lífshættu var ákveðið að nota efni Kerecis á húð hans. En efnin voru staðsett á Ísafirði og Pétur í Reykjavík og engin flug milli bæjarfélaganna þennan dag. Því keyrði starfsmaður Kerecis með efnin alla leið suður. 

Endurhæfing Péturs gengur vel og vill hann byggja upp styrk til að geta farið aftur á gönguskíði en fyrir slysið var hann mikill skíðakappi.

„Ég er svo heppinn að dóttir mín býr hér í Reykjavík og sonur hennar, barnabarn mitt, er góður félagi í gegnum endurhæfinguna,“ segir Pétur.


Tengdar fréttir

Hlaupa til styrktar vini sem slasaðist al­var­lega í vinnu­slysi

Hlaupahópurinn Riddarar Rósu á Ísafirði stendur fyrir hlaupi til styrktar Pétri Oddssyni og eiginkonu hans, Sigurlín Guðbjörgu Pétursdóttur. Pétri hefur verið haldið sofandi í öndunarvél eftir að hann lenti í alvarlegu vinnuslysi.

Eigandi LEGO setur 5 milljarða króna í Kerecis

Danska fyrirtækið KIRKBI A/S, eigandi LEGO vörumerkisins, mun fjárfesta 40 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 5,3 milljörðum króna, í Kerecis og er íslenska fyrirtækið verðmetið á 73 milljarða króna í viðskiptunum. Þetta kemur fram í bréfi sem stjórn Kerecis sendi á hluthafa í gær og Innherji hefur undir höndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.