Tónlist

Samdi lag til unnustunnar á svipuðum tíma og hann ákvað að biðja hennar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Júlí Heiðar var að gefa út lagið Alltaf þú.
Júlí Heiðar var að gefa út lagið Alltaf þú. Óli Már

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Alltaf Þú en blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra nánar frá.

Júlí flutti lagið í Veislunni hjá Gústa B í gær en hann tók það einnig í Brennslunni fyrir um tveimur vikum síðan. Alltaf þú er komið inn á Íslenska listann á FM og er hér á ferðinni einlægt og persónulegt lag um ástina. 

Um hvað fjallar nýja lagið?

Nýja lagið heitir Alltaf þú og samdi ég það til unnustunnar minnar á svipuðum tíma og ég var að plana að fara á skeljarnar og biðja hennar. Lagið vísar örlítið í það.

Hvernig kom lagið til þín?

Það er oft þannig með mig að lögin koma hratt og textabrot með. Ég sest svo yfir textann þegar lagið er komið. Í þessu tilfelli kom ég með vers, brú og viðlagið á píanó til Fannars Freys Magnússonar sem semur og vinnur lagið með mér. Hann tók lagið og smíðaði C-kafla og allan hljóðheiminn.

Hvaðan sóttir þú innblástur við gerð lagsins?

Ég skoðaði ýmsa tónlistarmenn þegar ég var að hugsa hvert ég vildi fara með það og þar var Andy Grammer mikill innblástur. Ég hef fylgst með honum í mörg ár og hefur alltaf langað til þess að gera lag í hans anda.


Tengdar fréttir

Júlí Heiðar og Þórdís Björk trúlofuð

Leikararnir Júlí Heiðar og Þórdís Björk eru trúlofuð. Þau greindu frá því í sameiginlegri færslu á Instagram og bað hann hennar í uppáhalds byggingunni þeirra, Samkomuhúsinu á Akureyri.

Biður foreldra sína fyrirgefningar í nýju lagi

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur, sem fylgir á eftir hinu gífurlega vinsæla ástarlagi Ástin heldur vöku. Júlí frumflutti lagið í gær í beinni hjá Gústa B í útvarpsþættinum Veisla á FM957. Blaðamaður tók púlsinn á tónlistarmanninum og fékk að heyra söguna á bak við lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×