Erlent

Árásarmaður skotinn af vegfaranda

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan segir árásarmanninn hafa gengið inn í verslunarmiðstöðina með riffil og nokkur magasín full af skotum.
Lögreglan segir árásarmanninn hafa gengið inn í verslunarmiðstöðina með riffil og nokkur magasín full af skotum. AP/Kelly Wilkinson

Þrír voru skotnir til bana og tveir særðir eftir að maður vopnaður hálfsjálfvirkum riffli hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Greenwood, úthverfi Indianapolis, í Indiana í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var skotinn til bana af vopnuðum 22 ára gömlum vegfaranda.

Lögreglan segir árásarmanninn hafa gengið inn í verslunarmiðstöðina með riffil og nokkur magasín full af skotum og hóf hann skothríðina á matsölutorgi verslunarmiðstöðvarinnar, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Fjórir af þeim fimm sem árásarmaðurinn skaut voru konur og þar af ein tólf ára stúlka sem særðist en hún og hinn sem særðist eru í stöðugu ástandi.

Jim Ison, yfirmaður lögreglunnar í Greenwood, hefur hyllt manninn sem skaut árásarmanninn og sagt hann hetju.

„Hetja dagsins er borgarinn sem bar byssu með löglegum hætti og gat stöðvaði árásarmanninn nánast um leið og árásin hófst,“ sagði Ison í gær. Þrátt fyrir að árásin hafi verið stöðvuð tiltölulega fljótt dóu þrír.

Fjölmargar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað í Bandaríkjunum á þessu ári. Skólar, kirkjur, matvöruverslanir og skrúðgöngur eru meðal staða og viðburða þar sem árásarmenn vopnaðir hálfsjálfvirkum rifflum hafa myrt fjölda fólks.


Tengdar fréttir

Fjöldi mis­taka í að­gerðum lög­reglu

Lögreglan í Uvalde gerði fjölda mistaka þegar unnið var að því að stöðva skotárás inni í Robb-grunnskólanum í maí. Alls létu 21 manns lífið í árásinni.

Íhugaði að gera aðra skotárás í öðrum bæ

Robert E. Crimo, sem hefur játað við yfirheyrslur að skjóta sjö manns til bana á skrúðgöngu í Highland Park á mánudaginn, íhugaði alvarlega að gera aðra skotárás í öðru ríki. Hann var vopnaður og með tuga skota en hætti við.

„Áður en við vitum af byrjar hann bara að skjóta og skjóta“

Ung íslensk kona sem var í verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn sem skotárás var gerð á á sunnudag segist ekki hafa áttað sig strax á því sem var að gerast þegar byssumaðurinn hleypti fyrstu skotunum af. Hún er þakklát fyrir að hafa brugðist rétt við í ótrúlega ógnvekjandi aðstæðum, en byssumaðurinn var á einum tímapunkti aðeins nokkra metra frá henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×