Sport

Dagskráin í dag: Seinni viðureign TNS og Víkings

Atli Arason skrifar
Víkingar eru einum leik frá þriðju umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.
Víkingar eru einum leik frá þriðju umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Vísir/Hulda Margrét

Það er ein bein útsending á sport rásum Stöðvar 2 í dag þegar sýnt verður frá viðureign TNS og Víkings í Sambandsdeild Evrópu, beint frá Oswestry í Englandi.

Stöð 2 Sport

Viðureignin hefst klukkan 17.00 en Íslands- og bikarmeistarar Víkings leiða einvígið með tveimur mörkum gegn engu, eftir tvö mörk Kristals Mána úr vítaspyrnum í fyrri viðureign liðanna í Víkinni síðasta fimmtudag.

Vert er að minnast á að Breiðablik spilar sína síðari viðureign í Sambandsdeildinni gegn Budućnost Podgorica næstkomandi fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×