Innlent

Vill prófa að breyta klukkunni í Vest­manna­eyjum

Eiður Þór Árnason skrifar
Erna Sif Arnardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn á svefnvenjum Íslendinga.
Erna Sif Arnardóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn á svefnvenjum Íslendinga. HR

Reglulega hefur komið til umræðu að seinka klukkunni á Íslandi um eina klukkustund til að færa hana nær sólartíma og samræma betur líkamsklukku Íslendinga.

Eftir ítarlega athugun stjórnvalda á árunum 2018 til 2020 þar sem meðal annars barst metfjöldi umsagna frá almenningi í Samráðsgátt tók ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ákvörðun um að klukkan á Íslandi skyldi haldast óbreytt.

Erna Sif Arnardóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík (HR) og forstöðumaður Svefnseturs HR, segir að niðurstöður svefnrannsókna bendi eindregið til að það myndi hafa jákvæð heilsufarsleg áhrif að seinka klukkunni um eina klukkustund.

„Allar rannsóknir sem hafa verið gerðar og allir vísindamenn sem virkilega eru að vinna á þessu sviði eru að hvetja til þess að við séum á réttri klukku, það er að segja að sól sé hæst á lofti á hádegi,“ sagði Erna Sif í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

„Í millitíðinni á að setja fjármuni skilst mér í rannsóknir á svefni og að bæta svefn Íslendinga. Það hefur ekki komið fjármagn með því enn þá en við erum að vinna með Landlæknisembættinu að fræðsluátaki og búa til efni fyrir skóla og slíkt.“ Einnig verði brátt farið í fræðsluátak fyrir fólk í vaktavinnu og vinnuveitendur þeirra. 

Höfðu áhyggjur af fækkun birtustunda

Fækkun birtustunda á vökutíma vó þyngst í ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem sagði að skoðun á því hvort færa ætti staðartíma nær sólartíma „hafi ekki leitt fram nægilega sterk rök til að réttlæta þá miklu breytingu sem felst í því að seinka klukkunni um eina klukkustund.“ Sömuleiðis hefur verið kallað eftir frekari rannsóknum á svefni íbúa á norðurslóðum.

„Það er alveg rétt að minni rannsóknir hafa verið gerðar á norðlægum slóðum, en það er auðvitað flókið að gera slíkar rannsóknir,“ segir Erna Sif.

„Það þarf þá að breyta klukkunni hjá hluta fólks og það var auðvitað það sem við vorum að vona að við gætum gert á Íslandi og gera það sem tilraunaverkefni. Ein hugmynd sem kom upp var að við myndum fá Vestmannaeyjar með okkur í lið og þau væru á annarri klukku þar sem þau eru á sér eyju, en við höfum ekki farið í það enn þá,“ segir Erna Sif létt í bragði.

Erna Sif vill sjá hvaða áhrif það myndi hafa á íbúa Heimaeyjar að ýta þeim í næsta tímabelti.Vísir/Vilhelm

Hún bætir við að þessa stundina þurfi rannsóknarteymi hennar við Svefnsetur HR að verja allri sinni orku í að vinna að risastóru verkefni sem skoðar kæfisvefn og hrotur Íslendinga. 

En hafið þið verið í viðræðum við Eyjamenn?

„Þetta hefur eitthvað aðeins verið viðrað en bara svona óformlega. Það gæti verið gaman að gera þetta,“ segir Erna Sif. Núna leiti hún hins vegar að þátttakendum fyrir rannsóknarverkefnið Svefnbyltinguna sem hefur fengið fimmtán milljóna evra styrk, sem samsvarar rúmum tveimur milljörðum króna, úr Horizon 2020 rammaáætlun Evrópusambandsins fyrir rannsóknir og nýsköpun.

Hlusta má á viðtalið við Ernu Sif í Reykjavík síðdegis í heild sinni í spilaranum.


Tengdar fréttir

Klukkunni verður ekki seinkað

Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár.

Sá á kvölina sem á völina í klukku­málinu

Forsætisráðherra segir að afar góð rök séu fyrir seinkun á klukkunni en einnig fyrir því að halda tímanum óbreyttum. Eftir samráð um málið ætlar hún að leggjast undir feld og tekur svo ákvörðun í málinu á vordögum.

Meirihluti landsmanna vill seinka klukkunni

Rúmlega 63 prósent Íslendinga vilja að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund frá því sem nú er. Aðrir vilja óbreytta stöðu klukkunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×