Eftir að Fury varði WBC þungaviktartitil með því að leggja Dillian Whyte að velli á Wembley í apríl fyrr á þessu ári lagði Fury hanskana á hilluna.
Nú gæti verið að Fury nái í hanskana af hillunni og mæti kraftlyftingamanninum Hafþóri Júlíusi í hnefaleikabardaga.
„Það væri skemmtilegt að sýna honum fyrir framan 70 þúsund áhorfendum hvernig hnefaleikar virka og rota hann svo. Viðræður standa yfir og ganga vel," sagði Fury í samtali við Telegraph um mögulegan bardaga sinn við Fjallið.
„Það væri gaman,“ sagði Fury um bardagann við Hafþór í samtali við enska fjölmiðilinn Telegraph. „Það væri frábært að mæta þarna frammi fyrir 70 þúsund áhorfendum og sýna honum hvað hnefaleikar snúast um, fá hann til að klúðra, og rota hann svo.“
„Ég vil endilega slást við hann og vonandi verður þetta staðfest sem fyrst," sagði Hafþór Júlíus sem hefur barist tvisvar sinnum í hnefaleikabardaga og haft betur í bæði skiptin.