Öllu var til tjaldað og lagið Næs var sérstaklega endurunnið fyrir Hinsegin daga. Textinn fjallar um baráttu hinsegin fólks frá sjónarhorni söngvarans og um ytri baráttu við samfélagið, innri baráttu hinsegin fólks, drauma og vonir; þá réttmætu kröfu um að hinsegin fólk þurfi ekki afsaka sig fyrir að vera þau sjálf.
Lagið er upphaflega samið af Axeli Inga Árnasyni og er svokölluð endurhljóðblöndun af laginu úr leiksýningunni, sem margoft hefur verið sýnd fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Axel Ingi fékk Grímutilnefningu fyrir tónlist ársins og Bjarni, söngvari lagsins, fékk sömuleiðis tilnefningu sem söngvari ársins.
Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan eða á Spotify.