Þjálfari Fulham söng Mitrovic lofsöngva: „Ekki bara mörk“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. ágúst 2022 14:04 Marco Silva var ánægður með sinn mann í dag. James Williamson - AMA/Getty Images Marco Silva, þjálfari Fulham, var eðlilega sáttur við stigið er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Fulham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hann var sérstaklega ánægður með Aleksandar Mitrovic, en Serbinn skoraði bæði mörk liðsins.
Þessi 27 ára serbneski framherji var allt í öllu í sóknarleik Fulham í dag, en ásamt því að skora mörkin tvö fiskaði hann einnig vítaspyrnuna sem hann svo skoraði sjálfur úr. Þá var hann einnig oft á tíðum mjög hættulegur fram á við og áttu varnarmenn Liverpool í stökustu vandræðum með að hemja þennan stóra og stæðilega framherja. Marco Silva var eins og áður segir kátur í leikslok þegar hann mætti í viðtal. Þar fór hann stuttlega yfir leikinn áður en hann hrósaði Mitrovic sérstaklega fyrir sitt framlag. „Við verðum að bera virðingu fyrir Liverpool, en auðvitað þurfum við að vinna okkar vinnu og treysta á okkur sjálfa,“ sagði Silva í leikslok. „Við áttum frábæran fyrri hálfleik, nánast fullkominn miðað við hvað við stjórnuðum mikið. Svo í seinni hálfleik þá mættum við þeim einnig mjög vel.“ „Ég veit vel hvaða gæðum Mitrovic býr yfir og ég er hér til að reyna að ná sem mestu út úr mínum leikmönnum. Mitrovic er ekki bara mörk, heldur setur hann alltaf pressu á andstæðingana og hann átti frábæran leik í heild í dag.“
Enski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Fleiri fréttir Newcastle - Chelsea | Skjórar í meiðslakrísu gegn gestum á góðu skriði Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjá meira