Kim Kardashian, athafnakona og raunveruleikasjónvarpsstjarna, óskaði eftir skilnaði við Kanye West í febrúar á síðast ári en þá höfðu orðrómar gengið um að hjónin hygðust skilja í þó nokkurn tíma. Það var svo ekki fyrr en í mars á þessu ári sem skilnaðurinn gekk endanlega í gegn.
En frá því að Kim óskaði eftir skilnaðinum hefur West farið mikinn á bæði samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum í tilraun til að vinna ást Kim að nýju.
Drap Davidson í tónlistarmyndbandi
Hegðun West versnaði þó til muna þegar Kim byrjaði með SNL-leikaranum Pete Davidson. Þá hóf West að birta reglulegar níðfærslur um Davidson á samfélagsmiðlum þar sem hann gerði lítið úr Davidson, hótaði honum og uppnefndi hann „Skete Davidson.“
Lágkúruleg hegðun West náði ákveðnu hámarki þegar tónlistarmyndbandið við lagið Eazy með West og rapparanum Game kom út.
Í tónlistarmyndbandinu, sem er stillumynd með leirfígúrum (e. claymation), má sjá West í leirlíki ræna leirútgáfu af Pete Davidson og grafa hann lifandi í kjölfarið.
Í laginu sjálfu, sem hafði komið út skömmu áður, rappar West um að Guð hafi bjargað sér úr bílslysi svo hann gæti barið Davidson. Myndbandið virtist því fljótt á litið dulin líflátshótun West í garð Davidson.
Skete Davidson er dauður
Nýjast viðbótin við þessa herferð West gegn Davidson bættist við núna í dag, þremur dögum eftir að fréttir bárust af því að Kardashian og Davidson væru hætt saman.
Þá setti West inn mynd á Instagram af skáldaðri útgáfu af New York Times þar sem stendur á forsíðunni „Skete Davidson Dead at Age 28“ eða „Skete Davidson dáinn 28 ára að aldri.“
Neðar á fölsuðu forsíðunni segir að tónlistarmaðurinn Kid Cudi hafi ætlað að spila í jarðarförinni en hætt við af ótta við að fólk myndi kasta flöskum í hann. Eflaust er það vísun í það þegar Kid Cudi lenti í því nýlega að áhorfendur á tónlistarhátíðinni Rolling Cloud köstuðu flöskum upp á svið.
Kid Cudi er vinur bæði West og Davidson en Kanye hefur tekið vinskap Cudi við Davidson nærri sér. Í herferð West gegn Davidson hefur hann því einnig verið duglegur að hæðast að Cudi.
Það er ekki gott að segja hvaða þýðingu þessi nýjasta færsla Kanye hefur. Líklega er þetta einungis leið Kanye til að fagna sambandsslitum fyrrum eiginkona sinnar en vonandi þýðir þetta líka að West sé hættur að hrella bæði Davidson og Kardashian. Það er hins vegar aldrei að vita með Kanye.