Lífið

Einvalalið borðtennisleikara náði mögnuðu skoti í bjórtennis

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Tómas Ingi Shelton og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson bregðast við skoti Péturs Gunnarssonar sem keppti ásamt bróður sínum Skúla og sigruðu beerpong-keppnina. Þorkell Máni Þorkelsson festi myndbandið á filmu.
Tómas Ingi Shelton og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson bregðast við skoti Péturs Gunnarssonar sem keppti ásamt bróður sínum Skúla og sigruðu beerpong-keppnina. Þorkell Máni Þorkelsson festi myndbandið á filmu. Skjáskot/Þorkell Máni Þorkelsson

Einvalalið borðtennisleikara náði ótrúlegu skoti í bjórtennis í gærkvöldi í kveðjupartýi ríkjandi Íslandsmeistara. „Ég var að lenda í ótrúlegasta beerpong mómenti sögunnar,“ skrifar Pétur Marteinn Urbancic sem birti myndbandið.

Beerpong mætti lauslega þýða sem bjórtennis en leikurinn gengur sumsé út á það að skjóta borðtenniskúlu í bjórglas andstæðinganna, á gagnstæðum enda borðsins. Í hvert sinn sem kúlan endar í glasi þarf andstæðingurinn að þamba bjórinn, og svoleiðis gengur það þangað til tapliðið hefur drukkið úr öllum bjórglösunum. 

Skotið sem um ræðir:

Einvalalið borðtennisleikara

Það voru hins vegar engir aukvisar sem kepptu þar í bjórtennis, kvöldið sem skotið ótrúlega var fest á filmu. Í samtali við fréttastofu segir Pétur Marteinn Urbancic, sem snaraði myndbandinu á Twitter við góðar viðtökur, að allir sem hafi keppt þar um sigur í bjórtennismótinu, hafi á einhverjum tímapunkti orðið Íslandsmeistarar í borðtennis.

„Þetta var bara einvalalið. Það hefði auðvitað verið skandall ef einhverjir almúgamenn hefðu unnið okkur,“ segir Pétur. Strákarnir voru þar samankomnir til að kveðja núverandi Íslandsmeistara, Magnús Jóhann Hjartarson, ríkjandi Íslandsmeistari í einliðaleik karla, sem heldur á vit ævintýranna til Suður-Kóreu. Þar verður hann í skiptinámi í sálfræði en mun eflaust grípa í borðtennisspaðann við tækifæri.

Pétur Gunnarsson, sem keppti ásamt bróður sínum Skúla skaut skotinu sem Þorkell Máni Þorkelsson festi á filmu. 

Þess ber að geta að skotið skar ekki úr um það hvort liðið sigraði en að lokum báru Gunnarssynir sigurorð af þeim Pétri Urbancic og Tómasi Inga Shelton.

„Eftir langar samræður ákváðu þeir að þeir vildu ekki vinna á þessu," segir Pétur Marteinn að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.