Um klukkan hálf sex í morgun barst lögreglu tilkynning um að skotvopni hefði verið beitt gegn tveimur einstaklingum í heimahúsi á Hlíðarbraut á Blönduósi og að um alvarlegt tilvik væri að ræða. Þar hafði karlmaður skotið konu til bana og eiginmann hennar, fyrrverandi yfirmann sinn, í magann á meðan þau lágu í rekkju.
Heimildir fréttastofu herma að árásarmaðurinn hafi talið sig eiga eitthvað óuppgert við manninn í tengslum við starfslok hans hjá rótgrónu fyrirtæki á Blönduósi.
„Meintur gerandi fannst einnig látinn á vettvangi, það er að segja meintur gerandi skotárásarinnar. Í framhaldi var hlúð að hinum slasaða, vettvangur tryggður og lögreglan á Norðurlandi eystra kvödd til. Hún fer með rannsókn manndrápsmála,“ sagði Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, í samtali við Vísi í morgun.
Farið var yfir þær upplýsingar sem þá lágu fyrir um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Sonurinn vó banamann móður sinnar
Árásarmaðurinn var látinn þegar lögreglu bar að garði. Lögregla sagði í eftirmiðdaginn að hann hefði ekki svipt sig lífi og að hann hafi ekki verið drepinn með skotvopni. Tvennt var handtekið á vettvangi og síðar kom í ljós að um son hjónanna væri að ræða og unnustu hans. Unnustan var að gefa ungu barni þeirra brjóst þegar skothvellir heyrðust úr næsta herbergi.
Heimildir fréttastofu herma að sonurinn hafi þá farið út úr herberginu, hitt fyrir árásarmanninn og lent í átökum við hann með þeim afleiðingum að hann lést.
Lögreglan á Norðurlandi eystra, sem fer með rannsókn málsins, tilkynnti í kvöld að syninum og unnustu hans hefði verið sleppt úr haldi lögreglu og að ekki yrði farið fram á gæsluvarðhald yfir syninum, sem hefði fengið stöðu sakbornings í málinu.
Hafði haft í hótunum við fólkið
Greint var frá því dag að árásarmaðurinn hefði verið handtekinn fyrr í sumar af lögreglunni á Blönduósi. Maðurinn hafði þá í hótunum með skotvopn og var í kjölfarið tekinn höndum. Síðar var honum sleppt.
Það er því ljóst að hann hefur áður, og nýlega, komið við sögu lögreglu. Samkvæmt heimildum fréttastofu átti árásarmaðurinn við geðrænan vanda að stríða. Birgir Jónasson staðfesti það ekki þegar rætt var við hann í kvöldfréttum.
Hann sagði þó að til hafi staðið að svipta hann skotvopnaleyfi til bráðabirgða eftir að hald var lagt á öll skotvopn sem skráð voru á hans nafn. Það hafi verið í ferli á árásarstundu. Fram hefur komið í fjölmiðlum í dag að maðurinn hafi lagt stund á skotfimi.
Dökkt ský yfir Húnabyggð
Sveitarstjórn Húnabyggðar gaf frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem sagði að íbúar Húnabyggðar væru í áfalli eftir að skotárásin var framin. „Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur,“ sagði forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar, Guðmundur Haukur Jakobsson, þegar hann las yfirlýsinguna fyrir fjölmiðla.
„Við erum enn þá að vinna úr því að þetta hafi raunverulega gerst. Hugur allra íbúa Húnabyggðar er hjá þeim látnu, hlutaðeigandi og aðstandendum þeirra sem tengjast þessum hræðilega atburði. Samfélagið er í einhvers konar áfalli og allir eru að reyna að ná utan um þessa atburði og þær tilfinningar sem þeim fylgja,“ sagði Guðmundur.
Pétur Arason, nýráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar, sagðist vera „í sjokki“ vegna skotárásarinnar.
Klukkan átta í kvöld var haldinn lokaður upplýsingafundur fyrir íbúa Húnabyggðar í félagsheimilinu á Blöndósi. Séra Magnús Magnússon stýrði fundinum og lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra fór yfir málsatvik að því leyti sem unnt var. Eftir fundinn var haldin bænastund í kirkjunni á Blönduósi. Þá var áfallateymi Rauða krossins sent norður í dag til að veita íbúum Blönduóss áfallahjálp í dag.