Íslenski boltinn

Blóðgaði Ólaf en telur „margar ástæður“ fyrir rauða spjaldinu

Sindri Sverrisson skrifar
Kian Williams kíkir undir takkaskóna eftir að hafa brotið á Ólafi Guðmundssyni sem lá eftir. Ólafur hélt áfram leik en var með höfuðið vafið í sárabindum.
Kian Williams kíkir undir takkaskóna eftir að hafa brotið á Ólafi Guðmundssyni sem lá eftir. Ólafur hélt áfram leik en var með höfuðið vafið í sárabindum. Stöð 2 Sport

Kian Williams, leikmaður Keflavíkur, var enn harður á því eftir leikinn við FH í Bestu deildinni í gærkvöld að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald. Hann gaf í skyn að dómari leiksins hefði haft fleiri ástæður til að lyfta rauða spjaldinu en aðeins þá að fara eftir reglum.

Williams fékk rauða spjaldið eftir aðeins nokkurra mínútna leik í gær og eftirleikurinn var auðveldur fyrir FH-inga sem unnu afar kærkominn 3-0 sigur.

Hann var rekinn af velli fyrir að fara með sólann á undan sér í andlit Ólafs Guðmundssonar, varnarmanns FH, sem blóðgaðist við það en atvikið má sjá hér að neðan.

Klippa: Kian Williams rekinn af velli

Eftir leik tók Williams til skrifta en vildi þó greinilega skrifa meira en hann gerði um ákvörðun Péturs Guðmundssonar dómara.

„Það eru margar ástæður sem ég tel að geti valdið þessari ákvörðun dómarans en það er best að ég haldi munninum lokuðum,“ skrifaði Williams og því erfitt að segja nánar til um hvað hann var að gefa í skyn. Hér að neðan má sjá skrif hans í heild og lauslega þýðingu blaðamanns.

Kian Williams birti eftirfarandi skrif á Twitter eftir tap Keflavíkur gegn FH í gærkvöld.Skjáskot/@kpjwilliams7

„Til að byrja með vil ég biðja Ólaf afsökunar en ég ræddi við hann eftir leik til að ganga úr skugga um að það væri í lagi með hann. Ég ætlaði aldrei að meiða neinn og ég held að allir sjái það skýrt. Ég vil einnig biðja liðsfélaga mína og stuðningsmenn afsökunar á að vera rekinn af velli því þannig skildi ég okkur eftir í brekku og mér líður svo illa yfir því.

Að sama skapi er ég mjög svekktur því ég tel ekki að þetta hafi verið rautt spjald… flestir myndu taka undir það. Það eru margar ástæður sem ég tel að geti valdið þessari ákvörðun dómarans en það er best að ég haldi munninum lokuðum. Í staðinn vil ég bara biðja liðsfélaga mína, starfsliðið og stuðningsmenn aftur afsökunar. Næsti leikur. Áfram Keflavík.“


Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.


Tengdar fréttir

Umfjöllun,viðtöl og myndir: FH-Kefla­vík 3-0| Endurreisn FH hófst á sigri

Fyrir leikinn blésu FH-ingar í herlúðra. Boðið var meðal annars frítt á völlinn og var þetta leikurinn sem FH átti að snúa blaðinu við. Keflavík missti mann af velli á 6. mínútu. Einum fleiri skoruðu FH-ingar tvö mörk í fyrri hálfleik.Úlfur Ágúst Björnsson gerði þriðja mark FH í síðari hálfleik og gulltryggði fyrsta sigur Eiðs Smára í Bestu deildinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×