Innlent

Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys á Sogavegi

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá vettvangi. Annar bílanna endaði á hvolfi.
Frá vettvangi. Annar bílanna endaði á hvolfi. vísir/Steingrímur Dúi

Bílsys átti sér stað á Sogavegi rétt í þessu. Bíll hafnaði á hvolfi og var einn bílstjóri fluttur á sjúkrahús.

Tveir bílstjórar áttu hlut að máli en annar bílanna lenti á hvolfi á Sogavegi, líkt og sést á meðfylgjandi myndum.

„Einn maður var fluttur á sjúkrahús en ég get í raun ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við Vísi.

vísir/Steingrímur Dúi
Af myndum að dæma er um alvarlegt bílslys að ræða.vísir/Steingrímur Dúi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×