Lífið

Leonardo DiCaprio og Camila Morrone eru hætt saman

Elísabet Hanna skrifar
Sambandi parsins virðist vera lokið eftir fjögur ár saman.
Sambandi parsins virðist vera lokið eftir fjögur ár saman. Getty/Dia Dipasupil /Dimitrios Kambouris

Leikarinn, hjartaknúsarinn og aktívistinn Leonardo DiCaprio og leikkonan Camila Morrone hafa samkvæmt heimildum vestanhafs slitið sambandi sínu eftir fjögur ár saman.

Parið sást fyrst saman í kringum áramótin 2017-2018 í skíðaferð í Aspen en þau mættu formlega sem par á Óskarsverðlaunahátíðina tveimur árum síðar. Þrátt fyrir að mæta í sitthvoru lagi á viðburðinn sátu þau saman á hátíðinni sjálfri.

Í byrjun sambandsins var mikið rætt um aldursmun parsins í fréttunum en í dag er Leonardo 47 ára og Camila 25 ára. „Það eru svo mörg sambönd í Hollywood, og í sögu heimsins þar sem fólk er með stórt aldursbil. Mér finnst að allir ættu að geta verið með þeim sem þeir vilja vera með,“ sagði Camila á sínum tíma í viðtali við Los Angeles Times.

DiCaprio er einn vinsælasti leikari Bandaríkjanna og hefur farið með hlutverk í kvikmyndum á borð við Titanic, The Departed, Catch Me If You Can, The Aviator, Once Upon a Time in… Hollywood, What's Eating Gilbert Grape? og Inception.

DiCaprio hefur í gegnum árin átt í ástarsamböndum með fjölda frægra kvenna, meðal annars ofurfyrirsætunum Gisele Bündchen, Bar Refaeli, Blake Lively og Toni Garm.

Camila Morrone og Leonardo DiCaprio á Meistaradeildarleik PSG og Liverpool í París árið 2018.Getty

Tengdar fréttir

Kvik­myndin Don’t Look Up slær met

Kvikmyndinni Don’t Look Up, sem frumsýnd var á streymisveitunni Netflix á aðfangadag, hefur farið fram úr björtustu vonum framleiðenda. Leikstjórinn segist orðlaus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.