Lífið

Dolly selur hár­kollur ætlaðar hundum

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Sögnkonan segist elska dýr. 
Sögnkonan segist elska dýr.  Vísir/Getty

Ástsæla tónlistarkonan Dolly Parton hefur sett vörumerkið „Doggy Parton“ á laggirnar en merkið selur vörur fyrir hunda. Hluti af ágóðanum frá sölu varningsins mun fara til samtaka sem bjarga dýrum og gefa þeim heimili.

Í tilkynningu frá Parton vegna nýja vörumerkisins kemur fram að ást hennar á dýrum hafi ekki minnkað með árunum heldur þvert á móti en fyrsta plata tónlistarkonunnar hafi einmitt verið nefnd „Puppy love.“ Þessi ást Parton í garð dýra er sögð hafa gefið hugmyndinni byr undir báða vængi. Þessu greinir CNN frá.

Innan vörulínunnar verði bolir, kjólar og hárkolla meðal annars en hárkollan á að vera innblásin af hári Parton sjálfrar.

Á kynningarmyndum fyrir vörumerkið má sjá hund söngkonunnar en hann ber nafnið „Billy The Kid“

Vöruúrvalið má nú þegar sjá á Amazon en hægt er að skoða varninginn með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.