Fótbolti

Barkley mættur til Nice

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ross Barkley
Ross Barkley Getty Images

Enski miðjumaðurinn Ross Barkley fékk sig lausan undan samningi við Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans í Englandi og er búinn að finna sér nýtt lið.

Barkley var í kvöld kynntur til leiks hjá franska úrvalsdeildarliðinu Nice en hann gat samið við liðið þar sem hann var án félags.

Þessi 28 ára gamli miðjumaður fékk ekki margar mínútur hjá Chelsea á síðustu leiktíð en hann hefur einnig leikið með Aston Villa og Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Nice hefur sótt marga leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í sumar en þeir Kasper Schmeichel og Nicolas Pepe eru á mála hjá franska liðinu auk leikmanna á borð við Aaron Ramsey og Morgan Schneiderlin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×