Segir aldrei fleiri heilbrigðisstarfsmenn í langtímafjarveru vegna kulnunar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 6. september 2022 13:00 Theódór Skúli Sigurðsson barna, svæfingar og gjörgæslulæknir segir gríðarlegt álag á gjörgæsludeildum spítalans. Vísir Formaður Félags sjúkrahússlækna segir ástandið á Landspítalanum óásættanlegt. Yfirvofandi séu uppsagnir fimmtán bráðahjúkrunarfræðinga og skortur sé á læknum á bráðamóttöku. Ekkert hafi heyrst um lausnir á bráðamóttöku sem stjórnvöld hafi lofað síðasta vetur.
Yfir er gengið erfitt sumar í heilbrigðiskerfinu en undanfarna mánuði hafa borist fréttir af skorti á læknum og hjúkrunarfræðingum víða í heilbrigðiskerfinu. Þá tilkynnti Læknavaktin það í síðustu viku að opnunartími hennar verði styttur vegna manneklu. „Mönnunin var erfið og við erum búin að vera föst í viðjum 100 prósent nýtingar og kerfið stendur ekki undir sér. Allar heilbrigðisstofnanir hafa verið undir miklu álagi, ekki bara Landspítalinn heldur líka Sjúkrahúsið á Akureyri, sem átti mjög erfitt sumar. Við þurftum að hlaupa undir bagga þar og flytja sjúklinga suður til að aðstoða þá,“ segir Theódór Skúli Sigurðsson formaður Félags sjúkrahússlækna, en hann var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær. Hann hafi sjálfur lent í kulnun í vetur vegna langvarandi álags, sérstaklega eftir Covid, og hafi því haldið sig til hlés í umræðu um heilbrigðismálin. Auk þess hafi hann viljað gefa nýjum forstjóra og heilbrigðisráðherra svigrúm til að sýna sig og sanna. „Svo átti að stofna starfshóp um úrræði eða lausnir á bráðamóttökunni. Við höfum lítið heyrt og svo var ástandið þannig og fréttirnar, sem hafa verið að berast síðustu daga, að mér fannst ég tilneyddur til að skrifa eitthvað um ástandið,“ segir Theódór, sem skrifaði skoðanagrein á Vísi fyrir helgi um stöðuna í heilbrigðiskerfinu sem ber yfirskriftina „Um hægfara hnignun íslenska heilbrigðiskerfisins - hvar liggur ábyrgðin?“ Burðarásar bráðamóttökunnar á leiðinni út Hann sjái engar breytingar á stöðunni innan spítalans frá því sem var áður en ný ríkisstjórn tók við og fréttir síðustu daga hafi vakið enn meiri áhyggjur. „Til dæmis að Læknavaktin er að draga saman opnunartíma sem mun valda meira álagi. Fimmtán hjúkrunarfræðingar eru að hætta um þessi mánaðamót á bráðamóttökunni og sennilega annað eins um næstu mánaðamót. Svo berast fréttir frá læknum á bráðamóttökunni að læknamönnun er líka mjög tæp,“ segir Theódór. Að jafnaði vanti lækna í fjögur stöðugildi á bráðamóttökunni. Vegna manneklu komist bráðamóttakan ekki út úr því að fólk liggi á bráðamóttökunni í lengri tíma og komist ekki áfram í heilbrigðiskerfinu. Hann segir missinn af hjúkrunarfræðingunum sem séu að fara af bráðamóttökunni sé mikill. „Þetta eru burðarásar bráðamóttökunnar og þetta eru áratugir af reynslu sem eru að hverfa þarna. Þetta er mikill leki af þekkingu og reynslu, sem við megum ekki við. Samhliða þessu náum við ekki að manna pósta bráðalækna á bráðamóttökunni. Þetta er ákveðin birtingarmynd Landspítalans,“ segir Theódór. „Ég hef aldrei upplifað annað eins sumar sjálfur og í sumar. Ef ég hefði viljað tjá mig um heilbrigðismál hefði ég ekki getað það vegna þess að ég er búinn að vinna eins og vitleysingur.“ Starfsfólk fjarverandi í lengri tíma vegna langvarandi álags Hann hafi í sumar unnið sextíu til áttatíu tíma á viku og lengsta samfellda vinnutörnin hans hafi verið 22 dagar. „Hjúkrunarfræðingarnir sem eru að hætta núna og læknarnir sem hafa verið að flýja bráðamóttökuna og fara í önnur störf, þetta er allt fólk sem er búið að vera í þessum aðstæðum í allan þennan tíma. Að reyna að halda kerfinu gangandi en einhvern tíma þarf eitthvað undan að láta. Ég ætla að kalla þetta sálarkrísu, þar sem við erum sett í aðstæður sem við ráðum ekki við en erum að láta ganga upp,“ segir Theódór. Aldrei áður hafi eins margir heilbrigðisstarfsmenn verið frá vinnu í lengri tíma. „Við erum að koma út úr Covid, langtímaálagi, og við höfum aldrei séð jafn miklar fjarvistir, langtímafjarvistir heilbrigðisstarfsmanna. Það er það sem við erum að glíma við núna, ekki bara þessi króníski mönnunarvandi, heldur líka það ástand að þurfa að takast á við afleiðingar Covid,“ segir Theódór. Ólíðandi ástand á bráðamóttökunni Sjúklingum sem eru fastir á bráðamóttökunni vegna skorts á sjúkrarúmum fjölgi dag frá degi. „Þarna er fólk hálfnakið, það er verið að skoða það, það er verið að taka blóðprufur, það þarf að fara á klósett og annað á ganginum þar sem fólk er að hlaupa fram og til baka. Enginn friður, ekkert einkalíf þannig að þetta eru aðstæður sem eru öllum erfiðar,“ segir Theódór. „Sérstaklega heilbrigðisstarfsfólkinu sem þarf að vinna við þessar aðstæður og horfa upp á þetta þar sem fólk er dag eftir dag á bráðamóttökunni og kemst ekki inn á spítalann því öll pláss eru full. Við svo þröngvum þeim inn á spítalann en þá er óljóst hvað tekur við. Þar eru líka yfirfullar deildir.“ Veltir upp hvort mistök hafi verið að sameina sjúkrahúsin Hann bendir á að sjúkrarúmum hafi fækkað talsvert undanfarin tuttugu ár. Árið 2000 hafi verið 1.300 sjúkrarúm á öllum spítölum landsins. Í dag séu þau 650. „Það útskýrir af hverju við erum föst í viðjum 100 prósent nýtingar. Þetta er reiknidæmi sem ég skil ekki og ég skil vel að Bjarni Benediktsson skilji þetta ekki heldur, því hann er alltaf að setja meiri peninga í þetta,“ segir hann. „Ég held að við þurfum að horfa til baka og velta fyrir okkur hvort að sameining spítalans fyrir tuttugu árum hafi verið mistök.“ Hann segir að þær raddir séu að verða háværari sem vilji skipta spítalanum upp í hátæknisjúkrahús og almennt sjúkrahús. „Þannig að við séum annars vegar með hátæknisjúkrahús, sem sinnir þessu sérhæfða, og svo sjúkrahús sem er aðskilið og sinnir valaðgerðum. Þannig að bráðaaðgerðir og annað sem er brátt fái að vera á sínum stað á meðan biðlistarnir og valaðgerðirnar sem eru planlagðar fá að klárast þannig að við séum ekki alltaf að rífast um sömu plássin. Af því að með 100 prósent nýtingu náum við þessum biðlistum aldrei niður.“
Heilbrigðismál Landspítalinn Bítið Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Erlent Fleiri fréttir Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Eldur kviknaði í bílskúr Helgi hættur á Heimildinni Halla Hrund gengin til liðs við Framsókn og tekur sæti formannsins Ásmundur Einar skipar tvo skrifstofustjóra Settur tímabundið sem sýslumaður á Austurlandi „Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“ „Eigum við ekki að fara yfir þann þröskuld þegar við komum að honum?“ Sjá meira