Lífið

„Ef þær fara ekki þá fokking hendi ég þeim út“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunneva fann fyrir miklum ótta inni á staðnum The Box.
Sunneva fann fyrir miklum ótta inni á staðnum The Box.

Í raunveruleikaþættinum LXS á Stöð 2 í gær skelltu stelpurnar sér til London í draumaferð og gistu þar á glænýju fimm stjörnu hóteli.

Í þáttunum er fylgst með lífi þeirra Birgittu Líf, Ástrósu Trausta, Magneu Björgu, Sunnevu Einars og Ínu Maríu.

Stelpurnar fóru út að borða og að versla og síðan voru þær búnar að redda sér inn á skemmtistað sem kallast The Box og er einn sá vinsælasti í borginni.

Sumar úr hópnum fundu sig alls ekki inni á staðnum og upplifði Sunneva sig eins og þær væru alltaf fyrir öllum.

„Ég heyrði síðan manneskju segja upphátt rétt hjá mér, ef þær fara ekki þá fokking hendi ég þeim út. Þá sagði ég bara, við þurfum að fara,“ segir Sunneva sem rauk út. En það voru ekki allir á sama máli að yfirgefa staðinn. Birgitta Líf vildi vera áfram.

„Ég er eiginlega ennþá miður mín að hafa ekki séð þennan stað nægilega vel. Það eru alltaf allir að spyrja mig hvernig hafi verið inni á The Box og ég segi bara ég veit það ekki almennilega, því ég sá hann í raun ekki,“ segir Birgitta.

Hér að neðan má sjá brot úr þættinum sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi.

Klippa: Fíluðu sig ekki á heitasta skemmtistaðnum í London, allar nema ein
LXS





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.