Allt það helsta frá haustkynningu Apple Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2022 12:38 Frá kynningu Apple í gær. AP/Jeff Chiu Forsvarsmenn Apple kynntu í gær nýjar vörur á árlegri kynningu fyrirtækisins. Þar á meðal var kynntur nýr sími, ný snjallúr og ný heyrnartól. Eins og gengur og gerist þá vöktu nýju tækin og tólin mikla athygli.
Hér að neðan verður stiklað á stóru yfir það helsta sem sýnt var á kynningu Apple í gær. Nýir símar Í stuttu máli sagt virðist sem Apple hafi ekki gert miklar breytingar milli iPhone 13 og 14 en myndavélar nýju símanna eru betri. Fyrirtækið kynnti þó iPhone 14 Plus, sem er með stærri skjá og betri rafhlöðuendingu en grunnsíminn. Hins vegar voru kynntar stærri útgáfur af iPhone 14 sem kallast iPhone 14 Pro og Pro Max. Þeir símar líta öðruvísi út en þeir hefðbundnu og eru með öflugari örgjörva, A16. Þeir símar eru einnig með bjartari skjá, betri rafhlöðuendingu og betri myndavélar. Þá er Face ID myndavélin komin undir skjáinn og er ákveðið svæði á skjáum símanna sem kallað er „Dynamic Island“ en þar eiga skilaboð og annað að vera sýnileg. Pro-símarnir verða fáanlegir í fjólubláum lit, gulllit, silfurlit og svörtum lit. Þeir eru hannaðir til að standast meira hnjask en hefðbundnir símar. Apple kynnti einnig að nýjustu símar fyrirtækisins munu gera eigendum kleift að hringja neyðarsímtöl í gegnum gervihnetti. Það felur í sér að hægt sé að kalla eftir aðstoð, jafnvel þó viðkomandi sé ekki innan hefðbundins þjónustusvæðis. Það mun þó eingöngu eiga við notendur í Bandaríkjunum og Kanada, samkvæmt The Verge, og verður ókeypis í nýjum símum í tvö ár. Fyrirtækið opinberaði einnig að nýjustu símarnir í Bandaríkjunum verða ekki með rauf fyrir SIM-kort. Þess í stað verði notast við stafræn kort sem Apple segir að séu öruggari og geta gert notendum kleift að vera með tvö eða fleiri númer í sama símanum, án þess að þurfa að skipta um SIM-kort. Hér má sjá ítarlega kynningu á nýjustu símum Apple. Ný snjallúr Á kynningunni var ný kynslóð snjallúra Apple opinberuð í gær. Auk Apple Watch Series 8 kynnti fyrirtækið Apple Watch Ultra og Apple Watch SE, sem eru dýrari og ódýrari útgáfur af úrunum. WS8 úrið býr nú yfir hitaskynjara sem Apple segir að geti greint 0,1 gráðu hitabreytingu í notendum. Þá er úrið einnig búið skynjurum sem eiga að greina þegar notendur lenda í árekstri og hjálpa þeim við að hringja eftir aðstoð. Ultra úrið er ætlað íþróttamönnum og er sérstaklega styrkt gegn skemmdum og sliti. Þá á það einnig að vera með betri rafhlöðuendingu en önnur úr Apple. Ný heyrnartól Apple opinberaði einnig ný heyrnartól sem eiga að vera mun betri en síðasta kynslóð heyrnartóla Apple, AirPods Pro 2 eiga að hljóma betur, útiloka utanaðkomandi hljóð betur og endast betur en síðustu AirPods Pro.
Apple Tækni Mest lesið Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Barátta Seðlabankans löngu töpuð Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ódýrara að velja erlenda gjaldmiðilinn í posum erlendis Neytendur Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Viðskipti innlent Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi Neytendur Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Neytendur Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf Fleiri fréttir Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira