Elísabet lést í Balmoral-kastala í Skotlandi síðdegis í dag en fyrr í dag hafði verið tilkynnt að hún væri undir sérstöku eftirliti lækna, þar sem heilsu hennar færi hrakandi.
Þjóðarsorg ríkir nú í Bretlandi vegna fráfalls drottningarinnar, en Karl sonur hennar er tekinn við krúnunni. Hann verður Karl III Bretlandskonungur.
Hlý og alþýðleg
Í samtali við fréttastofu segir Katrín að andlát Elísabetar marki merkileg tímamót í sögu vestrænna ríkja.
„Elísabet hefur ríkt frá því Churchill var forsætisráðherra, þannig að þetta er ótrúlega langt tímabil sem hún var þjóðhöfðingi Bretlands. Hún hafði einhverja yfirsýn yfir 20. öldina sem verður ekki jafnað saman við aðra þjóðhöfðingja um þessar mundir,“ segir Katrín.
Katrín hitti Elísabetu einu sinni, þegar drottningin bauð leiðtogum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins til kvöldverðar í Buckingham-höll, árið 2019.
„Það kom mér á óvart hvað hún var hlýleg í framkomu, því hún er auðvitað drottning, og vel heima í Íslandi. Hún vildi einkum ræða við mig um íslenska hestinn og það var bara gaman að tala við hana. Það var einkar eftirminnilegt,“ segir Katrín.
Elísabet hafi þá lagt sig fram við að hitta alla sem í veislunni voru, sem Katrín segir ekki endilega vanalegt þegar kemur að þjóðhöfðingjum.
„Óháð þeirra stöðu. Mér fannst það skemmtilegt. Ég skil vinsældir hennar hjá bresku þjóðinni.“
Öll þessi saga í einni konu
Þá er Katrínu minnistæð ræða sem Elísabet flutti á loftslagsráðstefnu í Glasgow nokkru síðar. Það var þó í gegnum fjarfundabúnað, þar sem kórónuveiran réði ríkjum á þeim tíma.
„Það var gríðarlega eftirminnileg ræða. Hún ávarpaði leiðtoga heimsins og sagði eitthvað á þessa leið: „Nú verðið þið að hefja ykkur yfir pólitík augnabliksins og verða raunverulegir leiðtogar í loftslagsaðgerðum.“ Þetta var frábær ræða og það voru allir mjög snortnir. Þá var hún að vitna í eiginmann sinn, Filippus, sem þá var látinn. Þannig að þetta var bæði persónuleg og pólitísk ræða,“ segir Katrín.
Hún segir erfitt, á þessari stundu, að segja til um hversu stóra arfleið Elísabet skilur eftir sig.
„Þetta markar einhver endalok ákveðins tímabils, þar sem hún bjó yfir þessari miklu yfirsýn. Það var einmitt áhugavert, í þetta eina skipti sem ég hitti hana, þá ræddum við fjölgun kvenna í pólitík og aðrar breytingar sem hafa orðið í hennar löngu tíð.“
Katrín segist fullviss um að margir líti á Elísabetu sem heimilisvin, langt út fyrir Bretland og samveldið.
„Ég hugsa að það séu mörg sem eiga eftir að muna hvar þau voru þegar þau heyrðu þessi tíðindi. Einfaldlega vegna þess að hún var ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu, allt frá seinni heimsstyrjöld og til vorra daga. Það er eitthvert samhengi í þessu sem er alveg ótrúlegt,“ segir Katrín.