Lífið

LXS semja um aðra þáttaröð og svara gagnrýninni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
LXS þættirnir eru sýndir á Stöð 2 og Stöð 2+ efnisveitunni.
LXS þættirnir eru sýndir á Stöð 2 og Stöð 2+ efnisveitunni. Stöð 2

Raunveruleikaþátturinn LXS hefur vakið athygli og umtal síðustu vikur en Stöð 2 hefur nú samið við hópinn um að gera aðra þáttaröð. 

Í þáttunum fá áhorfendur að fylgjast með þeim Birgittu Líf, Ástrós Trausta, Magneu Björg, Sunnevu Einars og Ínu Maríu. Í tilefni af því að ákveðið hefur verið  að fara af stað í framleiðslu á fleiri þáttum gerðu stelpurnar nýtt myndband sem þær birtu á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu. 

Það er augljóst að vinkonurnar hafa mikinn húmor fyrir umtalinu síðustu vikur eftir að þættirnir fóru í loftið. 

Klippa: LXS snýr aftur 2023

„Ég hefði notið þáttanna betur ef Birgitta Líf hefði farið í reiðikast og sparkað í litla hundinn sinn þegar hún komst að því að lúxusþyrlan sem hún pantaði kæmist ekki upp í fjall til skvísuhópsins í fyrsta þætti. Hún hefði öskrað: „Veistu ekki hver ég er?” á einhvern undirlaunaðan aðstoðarmann um leið og hún hefði ýtt myndavélinni frá sér og strunsað í burtu,“ var meðal annars sagt um þættina í Lestinni á RÚV

„Eða ef Magnea myndi í einstaklingsviðtölunum kalla Ínu Maríu heimska mellu fyrir að hafa hellt áfengum drykk yfir hausinn á henni í sundlauginni í öðrum þætti. Sunneva Einars færi í matarboð til tengdaföður síns, Bjarna Ben, þar sem kæmi í ljós að B. eldri væri ekki par sáttur við starfssvið tengdadótturinnar, hann myndi jafnvel kalla hana druslu eftir einum of mörg hvítvínsglös með humrinum. Benni litli og Sunneva yfirgæfu veisluna með tárin í augunum.“

Enginn hundur slasaðist við gerð myndbandsins.Stöð 2

Þættirnir LXS eru sýndir á miðvikudögum á Stöð 2 og er ljóst að áhorfendur munu fá að fylgjast með fleiri ævintýrum áhrifavaldanna í annarri þáttaröð sem fer í sýningu árið 2023.


Tengdar fréttir

LXS þyrlan komst ekki að sækja Birgittu vegna veðurs

Í öðrum þættinum af LXS var sýnt frá skíðaferðinni árlegu sem þær vinkonurnar fara alltaf í saman. Að þessu sinni var farið á Sauðárkrók og var búið að plana ferðina alveg frá a-ö.

Pat­rekur segir Birgittu ekki hafa átt neðan­beltis­höggin skilið

Íslensku raunveruleikaþættirnir Æði sem sýndir eru á Stöð 2 hafa notið mikilla vinsælda en fjórar seríur hafa verið framleiddar. Á dögunum lýsti Patrekur Jamie úr Æði hópnum, yfir óánægju sinni vegna ummæla sem Birgitta Líf, meðlimur LXS vinkvennahópsins sem er miðpunktur nýrrar raunveruleikaseríu lét falla. Patrekur segir nú málið hafa verið misskilning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.