Disney heldur um helgina D23, kynningarviðburð fyrir allt sitt efni. Í gær voru bæði verkefni Lucasfilm, sem framleiðir Star Wars, og Marvel kynnt fyrir almenningi.
Andor
Andor er væntanlegt eftir bara tíu daga. Í þessari síðustu stiklu sem var frumsýnd í gær má sjá Cassian Andor koma sér í vægast sagt vafasamar aðstæður á meðan hann reyndir að leggja uppreisnarmönnnum lið. Þættirnir fjalla um ævintýri Andors í aðdraganda þeirra atburða sem sýndir voru í Rogue One.
Þriðja sería The Mandalorian
Þriðja sería hinna geysivinsælu þátta The Mandalorian er á leiðinni. Sjá má í stiklunni að Mando og Grogu ná aftur saman... loksins.
Tales of the Jedi
Já, þessir teiknimyndaþættir sem fjalla eins og nafnið gefur til kynna um ævintýri Jedi-reglunnar verða frumsýndir 26. október. Þann dag koma þrír fyrstu þættirnir inn en serían verður í heildina sex þættir. Í þáttunum fylgjumst við með Jedum Jedi úr forsöguþríleiknum, hluta I-III, en Count Dooku og Ahsoka Tano verða áberandi.
Squid Game stjarna í aðalhlutverki
Annað sem tilkynnt var að sé á leiðinni er önnur sería af The Bad Batch, sem fjallar um hóp klóna í kjölfar atburða Clone Wars.
Þá sýndi Lucasfilm fyrstu myndina úr þáttunum Ashoka, sem fjalla um hina geysivinsælu Sabine. Þættirnir verða leiknir og Natasha Liu mun fara með aðalhlutverkið.
¡Primera imagen de Star Wars: Ahsoka! pic.twitter.com/tY2RySNVAh
— Agente de Marvel #D23Expo #SecretInvasion (@AgentedeMarvel_) September 10, 2022
Þá hefur Lee Jung-jae, sem gerði garðinn frægan í Squid Game, verið ráðinn í verkefni hjá Lucasfilm en hanmun fara með aðalhlutverkið í þáttunum The Acolyte, sem eru væntanlegir á næsta ári. Fram kemur í lýsingu þáttanna á imdb að í þáttunum sjáum við leyndardóma og hina sístækkandi myrku hlið sem fram kemur á lokadögum High Republic.