Björk og Árni á meðal þeirra áhrifamestu undir þrítugu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. september 2022 13:30 Árni Hrafn Kristmundsson og Björk Hrafnsdóttir. Samsett Björk Hrafnsdóttir og Árni Hrafn Kristmundsson hljóta TOP 20 UNDER 30 – Nordic Music Biz viðurkenningu í ár. Þetta kemur fram í nýrri fréttatilkynningu frá ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar.
Í dag kynna Norðurlöndin, sjötti stærsti tónlistarmarkaður í heimi, sigurvegara Top 20 Under 30 – Nordic Music Biz eða þau 20 undir þrítugu sem skara fram úr í tónlistariðnaðinum. Verðlaunaafhending fer fram á By:Larm tónlistarhátíðinni í Osló þann 15. september við hátíðlega athöfn þar sem þeir Björk Hrafnsdóttir og Árni Hrafn Kristmundsson eru viðurkennd fyrir framlag sitt til tónlistargeirans á Íslandi. Verðlaunin eru úr smiðju NOMEX (Nordic Music Export) sem er samstarfsverkefni ÚTÓN og systurskrifstofa hennar á Norðurlöndunum, Export Music Sweden, Music Export Denmark, Music Finland og Music Norway, og eru sett á laggirnar til að auka sýnileika og samvinnu innan norræna tónlistariðnaðarins. „Norræn tónlist af öllum gerðum heldur áfram að blómstra og ná eyrum fólks um víða veröld, bæði á streymisveitum en líka á vinsældarlistum um allan heim í formi alþjóðlegra stórstjarna á borð við Sigrid, Zara Larsson, Of Monsters and Men, Mø, Alma og Kygo, sem og virtustu lagahöfunda í heimi eins og Stargate, Max Martin og Alan Walker,“ segir í tilkynningu frá ÚTÓN. „Viðurkenning þessi er hugsuð sem lyftistöng fyrir ungt athafnafólk í tónlistargeiranum og varpar ljósi á störf þeirra og gefur þeim tækifæri til að auka tengslanet sitt og hittast á By:Larm tónlistarhátíðinni hvar stór hluti norræna tónlistargeirans kemur saman.“ Útón Unnið fyrir Apple, Netflix og HBO Björk Hrafnsdóttir er listfræðingur, Hún er með MA gráðu í sýningarstjórn frá Listaháskóla Íslands þar sem hún einbeitti sér að listrænu samstarfi listamanna og sýningarstjóra sem og sýningarstjórnaraktívisma. „Sem listfræðingur hefur hún unnið að ýmsum verkefnum hérlendis og erlendis, með áherslu á náið og þverfaglegt samstarf í myndlist, tónlist og hönnun. Sem sýningarstjóri vinnur hún bæði með tónlistarmönnum og listamönnum og leggur áherslu á að byggja upp samfélag þar sem fólk getur stutt og veitt hvert öðru innblástur,“ segir í tilkynningunni. „Frá árunum 2018 til 2020 starfaði hún fyrir írska tónlistarmanninn Damien Rice þar sem hún skipulagði og setti upp fjölmargar alþjóðlegar upptökur sem og skapandi hópferð á Ítalíu fyrir Damien Rice, Feist, Adrianne Lenker, Mariam Vallentin og fleiri. Upp á síðkastið hefur hún starfað sem sjálfstæður listsýningarstjóri. Björk hóf störf hjá íslenska útgefandanum INNI árið 2020 og hefur tekið þátt í kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum hjá Apple, Netflix, HBO og stýrir kvikmyndaverunum í Reykjavík.“ Útón Einn efnilegasti tónlistarstjóri landsins Árni Hrafn Kristmundsson er 29 ára. Hann stundaði nám við BIMM Berlín. Árni stofnaði Klapp Management ásamt Henný Frímannsdóttur árið 2018. Hann hefur stýrt fjölda virtra íslenskra listamanna eins og Warmland, Moses Hightower, Valdimar og hinn heimsdáða Daða Frey. „Í dag starfar Árni sem framkvæmdastjóri Daða Freys og ber ábyrgð á daglegum rekstri hans, tónlistarútgáfum og ferðum. Árni Hrafn hefur einnig verið framleiðandi á fjölda stórra tónlistarviðburða á Íslandi auk þess að hafa umsjón með tónlistarútgáfu, tónlistarmyndbandagerð og markaðssetningu fyrir ýmsa listamenn. Árni Hrafn er einn efnilegasti tónlistarstjóri sem Ísland hefur upp á að bjóða,“ segir í tilkynningu frá ÚTÓN. „Þetta er í fimmta sinn sem verðlaunin eru veitt. Samtökin fagna fjölbreytileika í iðnaði, geirum og tegundum og endurspeglar tónlistarsenuna og iðnaðinn sem Norðurlöndin hafa upp á að bjóða. Það sýnir einnig mikilvægi og nauðsyn þess að halda áfram að skapa öruggan og innihaldsríkan tónlistariðnað þar sem allt fólk sést og raddir heyrast. sýnir einnig mikilvægi og nauðsyn þess að halda áfram að skapa öruggan og innihaldsríkan tónlistariðnað þar sem allt fólk sést og raddir heyrast.“ Útón Unnsteinn Manuel á meðal fyrri sigurvegara Í tilkynningu frá NOMEX segir að nauðsynlegur þáttur í vexti og velgengni norrænnar tónlistar og áhrifa á heimsvísu er fagfólkið sem vinnur á bak við tjöldin, og þá sérstaklega þau ungu sem geta hrint í framkvæmd nýjum hugsjónum, hugmyndum og viðskiptaháttum í hinum síbreytilega iðnaði sem tónlistarbransinn er. Sigurvegarar Nordic Music Biz Top 20 Under 30 eru valin út frá vexti þeirra verkefna sem þau eru að vinna að, starfsferils, viðurkenningu í greininni, áhrifa sem þau hafa á senuna, listrænni þróun, nýsköpun, tekjum, sölu, streymi, og kynningu. Áður hafa unnið 20 Under 30 fyrir hönd Íslands þau: Bergþór Másson umboðsmaður,, Ægir Sindri Bjarnason útgefandi, Soffía Kristín Jónsdóttir hjá Iceland Sync, Anna Ásthildur Thorsteinsson og Sindri Ástmarsson hjá Iceland Airwaves, Sigríður "Sigga" Ólafsdóttir hjá SÓNAR, Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrrum Label Manager Les Fréres Stefson. Samnorræn dómnefnd var fengin til að meta hvaða einstaklingar ættu að fá heiðurinn skilinn og fyrir hönd Íslands sátu þau Soffía Kristín Jónsdóttir (Iceland Sync), Einar Stefánsson (tónlistarmaður) og Árni Þór Árnason (umboðsmaður Ólafs Arnalds). Frá hinum Norðurlöndunum eru það þau Sophia Olofsson (Spotify), Emma Finnkvist (Warner Music), Christopher Thordson (Ifpi Sweden), Feniks Willamo (All Day Agency), Linda Lundberg (Arctic Rights, All Good Management / Checkbox Music), Teea Kasurinen (Universal Music Finland), Soffía Kristín Jónsdóttir (Iceland Sync), Einar Hrafn Stefánsson (Hatari / Iceland Dance Company), Árni Þór Árnason (Manager Ólafur Arnalds), Laia Kverneland (Tempi), Jens Karlsson (Heartbeat Management), Thea Moe (Warner Music), Agnes Kristiansen (Sony Music Norway), Andres Dahl (Paperclip), Maria Bringsjord (MTG / FONO / Shesaidso). Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ásamt Haraldi Hrafni Thorlacius, kvikmyndaframleiðanda, Hrefnu Helgadóttur kynningarstjóra ÚTÓN og Kim Wagenaar, umboðsmanni.Cat Gundry-Beck Lista yfir alla verðlaunahafa má sjá hér fyrir neðan. SVÍÞJÓÐ Fumi Amao (28), Co-Founder ‘Her Songs for Him’ / Artist, and Label Partnerships Manager Spotify Naftalem Tekle Ghiorghis (26), Creative, NAFT.se / Digital Marketing Coordinator, The Orchard Nordics Daniel Frölander (28), Brand Partnership Manager – Warner Music Sweden Emma Vikström (27), Senior Editor – Spotify NOREGUR Kedist Bezabih (30), Head of Music, International Rap festivals and touring – Goodlive Artists Celine Høye (28), Project Manager – Indie Recordings Viljar Siljan (27), Director – Blue Perspective Management Eric Elvenes (30), Co-founder of JB Music / A&R Manger, Idap Music / Musical Advisor – Enter.Art Nasra Artan (26), Co-Founder and A&R, 444 Tobias Gaultier Teigen (30), CEO of Toothfairy DANMÖRK Rosa Lois Balle Yahiya & Sofie Westh, Another Life Community Ryan Peterson (25), Co-Founder and MD – Stellar Trigger Emilie Skovgaard Sørensen (30), Music Supervisor, Nordisk Film Malika Mahmoud (26), Head of music/booking at Strøm, DJ, Promoter – Jasho Club, member of the nightlife- & music committee at the Copenhagen municipality. FINNLAND Eero Jääskeläinen (29), Program Manager at Allas Sea Pool, Korjaamo Culture Factory Jannika Hovinen (28), Production Manager at All Day Agency Minna Koivisto (29), Label Manager and A&R at Johanna Kustannus / Universal Music Finland Karoliina Kanerva (29), Head of International, Warner Music Nordics
Tónlist Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira