Viðskipti erlent

Eig­andi Patagonia gefur fyrir­tækið til góð­gerðar­sjóðs

Atli Ísleifsson skrifar
Bandaríkjamaðurinn Yvon Chouinard stofnaði útivistarfatnaðarframleiðandann Patagonia árið 1973. Hér er hann í einni verslun sinni árið 1993.
Bandaríkjamaðurinn Yvon Chouinard stofnaði útivistarfatnaðarframleiðandann Patagonia árið 1973. Hér er hann í einni verslun sinni árið 1993. Getty

Bandaríski auðmaðurinn Yvon Chouinard, sem er stofnandi og eigandi útivistarfataframleiðandans Patagonia, segir að hann hafi gefið fyrirtækið til góðgerðarsjóðs.

Hinn 83 ára Chouinard segist vona að með þessu nýja eigendafyrirkomulagi verði hægt að tryggja að allur hagnaður fyrirtækisins, sem fari ekki í uppbyggingu þess, renni til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Áætlar hann að um 100 milljónir Bandaríkjadala, um 14 milljarðar íslenskra króna, muni þannig renna til baráttunnar á ári hverju.

BBC segir frá því að fyrirtækið hafi verið stofnað árið 1973 og að tekjur þess á síðasta ári hafi numið um 1,5 milljarði Bandaríkjadala. Þá er talið að auðævi Chouinard hafi numið um 1,2 milljarði Bandaríkjadala, um 168 milljarðar íslenskra króna.

„Þrátt fyrir mikilleika þess þá eru auðlindir jarðar ekki óendanlegar, og það má ljóst vera að við höfum gengið umfram þanþol,“ sagði Chouinard þegar hann rökstuddi ákvörðun sína að gefa fyrirtækið frá sér. „Í stað þess að kreista verðmæti úr náttúrunni og umbreyta í auð, þá erum við að nýta þann auð sem Patagonia skapar til að vernda uppsprettuna.“

Fyrirtækið, sem staðsett er í Kaliforníu, hefur síðustu ár gefið um prósent af árlegum hagnaði til grasrótarsamtaka sem vinna að sjálfbærni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×