Frá þessu segir í tilkynningu en fyrir rekur Borealis Data Center tvö gagnaver hér á landi, á Blönduósi og Fitjum í Reykjanesbæ. Ekkert segir til um kaupverð í tilkynningunni.
Haft er eftir Birni Brynjúlfssyni, forstjóra og einum af stofnendum Borealis Data Center að Reykjavík Data Center sé öruggt gagnaver á góðum stað og hannað samkvæmt ítrustu kröfum til þess að hýsa kerfi með hæstu uppitímakröfur. „Gagnaverið er kærkomin viðbót sem styrkir vöruframboð Borealis og verður ánægjulegt að taka á móti viðskiptavinum í þetta nýja gagnaver félagsins,“ segir Björn.
Í tilkynningunni segir að Reykjavík Data Center sé hannað og byggt til að uppfylla ströngustu kröfur um áreiðanleika og upptíma. „Á meðal þeirra sem gera slíkar kröfur eru fjármálafyrirtæki, stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir og allir þeir sem vinna með viðkvæm og dýrmæt gögn.
Á síðasta ári keypti franski fjárfestingarsjóðurinn Vauban Infrastructure Partners meirihlutaeign í Borealis Data Center. Sjóðurinn leggur áherslu á langtíma fjárfestingar í innviðum með skýra sýn á sjálfbærni.
Gagnaver er vaxandi iðnaður á Íslandi og hefur umtalsverð uppbygging átt sér stað á síðustu árum með viðtækum áhrifum í allri virðiskeðjunni á Íslandi. Gagnaver eru ein af grunnstoðum undir öflugan upplýsingatæknigeira hér á landi,“ segir í tilkynningunni.