Lífið

Vinir Cöru Delevingne hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar

Elísabet Hanna skrifar
Vinir Cöru virðast hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar.
Vinir Cöru virðast hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar. Getty/Stephane Cardinale - Corbis

Heilsa fyrirsætunnar Cöru Delevingne hefur verið mikið í umræðunni vestanhafs og virðast vinir hennar hafa miklar áhyggjur. Leikkonan Margot Robbie sást meðal annars koma grátandi út af heimili Cöru sama dag og fyrirsætan átti að vera á viðburði sem hún mætti ekki á. 

Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir fer alltaf yfir það helsta í Hollywood í Brennslute vikunnar á þriðjudögum. Í dag fór hún meðal annars yfir meint samband Sumner Stroh og Adams Levine, nýja húsið hennar Kim Kardashian í Malibu og heilsu Cöru.

Hægt er að hlusta á Brennslute vikunnar með Birtu Líf í heild sinni hér að neðan.

„Vinir hennar og fólk sem er náið henni er að segja að þau séu öll að gera sitt besta. Til þess að koma henni undir læknishendur og líka í meðferð,“ sagði Birta Líf meðal annars um Cöru í Brennslute vikunnar. 

Áhyggjurnar hafa stigmagnast

Samkvæmt heimildum TMZ hafa vinir fyrirsætunnar haft miklar áhyggjur af geðheilsu hennar um nokkurt skeið. Nú telja þau þó að einnig sé þörf á meðferð við vímuefnum. Samkvæmt TMZ eru vinir hennar að reyna að koma henni í réttan farveg sem fyrst. 

Heimildirnar segja Cöru ekki þvertaka fyrir það að fá aðstoð en að hún sé ekki komin á þann stað að sækjast í hana, enn sem komið er.

Mætti ekki á sinn eigin viðburð

Daginn sem Morgot Robbie heimsótti hana átti Cara að vera á viðburði á vegum New York tískuvikunnar. Þar var verið að kynna „Cara Loves Karl“ línuna. Línan samstarf hennar til heiðurs Karl Lagerfeld heitins og vakti því fjarvera hennar mikla athygli.

Fyrr í mánuðinum sást hún fara um borð í einkaflugvél Jay-Z á flugvelli í Los Angeles. Fjörutíu og fimm mínútum seinna kom hún út úr flugvélinni, sem fór ekki í loftið, og ráfaði skólaus um svæðið. Myndir frá því atviki hafa verið í dreifingu á netinu líkt og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ray J segir Kim Kardashian og Kris Jenner sjálfar hafa lekið kynlífsmyndbandinu

Kim Kardashian skaust fyrst upp á stjörnuhimininn eftir að kynlífsmyndband af henni og þáverandi kærasta hennar Ray J lak á netið. Nú hefur hann gefið út yfirlýsingu þess efnis að móðir Kim, Kris Jennar, hafið átt hlut í því að myndbandið fór í dreifingu. Hann birti meðal annars samning þar sem kemur fram að þau hafi fengið greitt fyrir myndbandið. 

Gigi Hadid gæti orðið elsta kærastan til þessa

Sá orðrómur er nú á kreiki vestanhafs að stórleikarinn Leonardo Dicaprio sé að slá sér upp með ofurfyrirsætunni Gigi Hadid, aðeins nokkrum vikum eftir að greint var frá sambandsslitum Dicaprio og leikkonunnar Camillu Morrone.

Barns­feðurnir svara fyrir sig eftir yfir­lýsingu Blac Chyna

Það vakti athygli á dögunum þegar bandaríska fyrirsætan Blac Chyna tilkynnti fylgjendum sínum á Twitter að hún hefði þurft að losa sig við þrjár af bifreiðum sínum, verandi einstæð móðir með engan fjárhagslegan stuðning frá barnsfeðrum sínum.

David­son orðinn vel merktur Kar­dashian fyrir lífs­tíð

Grínistinn Pete Davidson sýndi nýlega nýtt húðflúr tileinkað kærustu sinni Kim Kardashian. Þetta er ekki fyrsta húðflúrið sem hann fær sér tileinkað henni og má því segja að hann sé vel merktur - og það fyrir lífstíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.