Innlent

Brynhildur nýr framkvæmdastjóri NAFO

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Brynhildur hefur unnið störf tengd sjávarútvegi í áratugi.
Brynhildur hefur unnið störf tengd sjávarútvegi í áratugi.

Brynhildur Benediktsdóttir, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Þrettán lönd eiga aðild að NAFO, þar á meðal Ísland. 

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en Brynhildur var ráðin á ársfundi stofnunarinnar sem haldinn var í síðustu viku. Markmið NAFO er að tryggja langtímavernd og sjálfbæra nýtingu fiskveiðiauðlinda á samningssvæðinu og standa vörð um vistkerfi hafsins. 

Brynhildur er hagfræðingur að mennt með diplómanám í hafrétti og meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún unnið störf tengd sjávarútvegi í áratugi en frá árinu 2008 hefur hún starfað á skrifstofu sjávarútvegs í matvælaráðuneytinu. 

Hún hefur einnig verið fulltrúi í og leitt sendinefndir Ísland á alþjóðavettvangi í sjávarútvegi. Þar á meðal í norrænu ráðherranefndinni, OECD, ICCAT, NEAF, NAFO og FAO ásamt WTO og á vettvangi SÞ auk þess að vinna að fiskveiðistjórnun innanlands.

Hún mun hefja störf á skrifstofu NAFO í Kanada um áramót. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×