Nýr fimm pensa peningur mun fara í dreifingu til almennra nota á næstu mánuðum og sérstakur fimm punda peningur mun einnig vera til sölu en hann er sagður hafa söfnunargildi fyrir fólk og sé ekki til almennra nota. BBC greinir frá þessu.
Eins og hefðin segir til um vísar andlit konungs til vinstri en áttin ákvarðast út frá þeirri sem forveri sneri í á sinni mynt, andlit Elísabetar II Bretlandsdrottningar vísaði til hægri. Einnig mun Karl ekki bera kórónu á myntinni en hefð sé fyrir því að konungar geri það ekki. Móðir hans, Elísabet bar kórónu á sinni mynt.
Frá byrjun næsta árs muni fleiri myntir birtast með sömu mynd, allt frá einu pens upp í tvö pund en myntir Elísabetar og Karls muni samt sem áður vera saman í dreifingu næstu árin.
Mikið hefur verið um „merkjaskipti“ hjá konungi síðan móðir hans lést en í vikunni var nýtt konungsmerki hans einnig kynnt. Konungsmerkið mun prýða póstkassa, bréfsefni og byggingar ásamt öðru.