Rüdiger hetja Evrópumeistaranna | Benfica tók stig af PSG

Antonio Rüdiger skoraði jöfnunarmark Real Madrid í kvöld.
Antonio Rüdiger skoraði jöfnunarmark Real Madrid í kvöld. Denis Doyle/Getty Images

Evrópumeistarar Real Madrid máttu þola 1-0 tap er liðið heimsótti úkraínska liðið Shakhtar Donetsk til Varsjá í Póllandi í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá gerðu franska stórliðið PSG og Benfica 1-1 jafntefli í París á sama tíma.

Evrópumeistarar Real Madrid hefðu tryggt sér sæti í útsláttakeppni Meistaradeildarinnar með sigri, en það var Oleksandr Zubkov sem kom heimamönnum í Shakhtar Donetsk í forystu þegar hann skoraði í upphafi síðari hálfleiks eftir stoðsendingu frá Bogdan Mykhaylichenko.

Lengi vel leit út fyrir að heimamenn myndu landa sigrinum og staðan var enn 1-0 þegar komið var djúpt inn í uppbótartíma. Það var ekki fyrr en á fimmtu mínútu uppbótartímans að jöfnunarmarkið leit dagsins ljós þegar Antonio Rüdiger skallaði fyrirgjöf Toni Kroos í netið og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.

Real Madrid trónir því enn á toppi F-riðils með tíu stig eftir fjóra leiki, fimm stigum fyrir ofan Shakhtar Donetsk sem situr í þriðja sæti riðilsins. Madrídingar þurfa aðeins tvö stig úr seinustu tveimur leikjum riðilsins til að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.

Þá þurfti franska stórliðið Paris Saint-Germain einnig að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið tók á móti portúgalska liðinu Benfica.

Kylian Mbappé kom heimamönnum í forystu með marki af vítapunktinum stuttu fyrir hálfleik, en Joao Mario jafnaði metin fyrir gestina eftir rúmlega klukkutíma leik, einnig af vítapunktinum.

PSG og Benfica eru því enn jöfn á toppi H-riðils með átt stig hvor og eru bæði á góðri leið með að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.

Úrslit kvöldsins

E-riðill

AC Milan 0-2 Chelsea

Dinamo Zagreb 1-1 FC Salzburg

F-riðill 

Celtic 0-2 RB Leipzig

Shakhtar Donetsk 1-1 Real Madrid

G-riðill

FC Kaupannahöfn 0-0 Manchester City

Borussia Dortmund 1-1 Sevilla

H-riðill

Maccabi Haifa 2-0 Juventus

Paris Saint-Germain 1-1 Benfica

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira