Lífið

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust son

Elísabet Hanna skrifar
Parið tók á móti sínu fyrsta barni á sunnudaginn.
Parið tók á móti sínu fyrsta barni á sunnudaginn. Samsett/Vísir/Facebook

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, er orðinn pabbi. Hann tók á móti sínu fyrsta barni ásamt kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Drengurinn kom í heiminn þann 9. október. Smartland greindi fyrst frá. 

Parið opinberaði sambandið síðasta sumar. Ingó greindi frá því að von væri á barni þegar meiðyrðamál hans gegn Sindra Þór Sig­ríðar­syni var tekið fyr­ir í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í maí fyrr á árinu.

Ingó stefndi Sindra fyr­ir um­mæli sem hann lét falla um hann ári áður, þegar Ingó var sakaður um kyn­ferðis­brot. Sindri var sýknaður af stefnu Ingó um meiðyrðin en sá síðarnefndi áfrýjaði dómnum. 

Barnalán í fjölskyldunni

Bróðir Ingó á einnig von á sínu fyrsta barni. Guðmundur Þórarinsson, tónlistar- og fótboltamaður á von á stúlku ásamt kærustu sinni Guðbjörgu Ósk Einarsdóttur, skipu­lags­verk­fræðing. Því er mikið barnalán í fjölskyldunni.


Tengdar fréttir

Sandy er komin með nýjan Danny

Jóhanna Guðrún, sem fer með hlutverk Sandy, er komin með nýjan Danny í Grease tónleikasýningunni og er það enginn annar en Magnús Kjartan Eyjólfsson sem tekur við hlutverkinu. Leikstjórn sýningarinnar er í höndum Grétu Salóme.

Ingó áfrýjar til Landsréttar

Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði.

„Þreklaus“ Ingó segist ekki hafa kýlt konu

Ingólfur Þórarinsson, sem er ef til vill betur þekktur sem Ingó veðurguð, segir það í „besta falli galið“ að hann hafi kýlt konu og hrækt framan í hana. Hann segist þreyttur á að verjast nafnlausum ásökunum en birtir á Facebook skjáskot af pósti frá lögmanni sínum þar sem fram komi að hann hafi aldrei verið kærður ofbeldisbrot eða kynferðisbrot.

„Þetta snýst fyrst og fremst um þolendur“

Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson, sem var í dag sýknaður af stefnu Ingólfs Þórarinssonar, tónlistarmanns, um meiðyrði. Hann segir niðurstöðuna skipta mestu máli fyrir þolendur. Sýkna hans þýddi að segja mætti hlutina fullum fetum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.