Philip Jalalpoor í gin ljónsins eftir bara einn leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2022 09:30 Philip Jalalpoor í sínum eina leik í Subway deildinni sem var á móti ÍR í Skógarselinu. Vísir/Bára Dröfn Íraninn Philip Jalalpoor hefur spilað sinn fyrsta og síðasta leik fyrir Njarðvík í Subway deild karla í körfubolta. Jalalpoor var ekki með Njarðvíkurliðinu í sigri á nýliðum Hattar á Egilsstöðum í gærkvöldi.
Njarðvíkingar tilkynntu það síðan eftir leikinn að samningi Philip Jalalpoor hefði verið rift eftir fyrsta leikinn þar sem Njarðvík tapaði mjög óvænt á móti ÍR í Breiðholtinu. Njarðvíkurliðið hefur spilað tvo fyrstu leiki sína á útivelli og leikmaðurinn náði því ekki að spila heimaleik með félaginu sínu áður en hann þurfti að taka pokann sinn. Tapið á móti ÍR var hins vegar mikið áfall fyrir Njarðvíkinga og kallaði á tafarlausar breytingar. „Phil þótti ekki hafa hentað liðinu nægilega vel en hann spilaði einn leik fyrir félagið í deildinni og þó nokkra á undirbúningstímabilinu,“ sagði í frétt á heimasíðu Njarðvíkur. Jalalpoor er 29 ára leikstjórnandi. Í eina leiknum sínum í Subway deildinni þá var hann með 7 stig á 22 mínútum en hitti bara úr einu af fimm þriggja stiga skotum sínum og náði ekki að gefa stoðsendingu. Jalalpoor var stoðsendingahæstur í austurrísku deildinni 2020 en hafði spilað með þýska liðinu Medi Bayreuth undanfarin tvö tímabil. Hann spilaði með íranska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Tókýó haustið 2021.
Subway-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Fótbolti Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Enski boltinn Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Körfubolti Búinn að skora gegn öllum en bíður enn eftir titli Fótbolti Vill hópfjármögnun fyrir Antony Fótbolti Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitakeppnin af stað Sport Fleiri fréttir Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Svefnlítill Emil sagði stopp en var stressaður fyrir kveðjustundinni Eini þjálfarinn sem hefur orðið deildarmeistari og dottið strax út „Flotti fíni Garðabær á móti Breiðholtinu“ „Trúi á fyrirgefningu og að fólk eigi að fá annað tækifæri“ Sjáðu fimm bestu tilþrifin og kjóstu Sabonis ekki með Litháen á EM Ráku sigursælasta þjálfarann rétt fyrir úrslitakeppnina Voru fimm stigum undir þegar 12,6 sekúndur voru eftir en unnu samt Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Miðasalan á EM er hafin Martin um EM dráttinn: „Yrðu algjör forréttindi að mæta þeim á vellinum“ „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Kjartan Atli: Undirbúningurinn fyrir úrslitakeppnina byrjar strax uppi á hóteli „Er ekki alveg eins gott að byrja á þeim?“ „Heimavöllurinn gefur þér ekki neina sigra“ Baldur: Ég reikna með að hinir leikirnir séu löngu búnir „Verð áfram nema Jóhanna reki mig“ „Málum alla staði sem við spilum á bláa og hvíta“ „Ætlum ekki að vera farþegar í úrslitakeppinni“ Uppgjörið: Þór - Keflavík 114-119 | Keflvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 103-110 | Tókst ekki að stela öðru sætinu Uppgjörið: Tindastóll - Valur 88-74 | Tindastóll er deildarmeistari Uppgjörið: Grindavík - KR 86-83 | Tímabilinu lokið hjá KR en Grindavík mætir Val Leik lokið: Haukar - ÍR 80-91 | ÍR-ingar tryggðu sér sjöunda sætið Uppgjörið: Höttur - Álftanes 99-95 | Höttur kvaddi úrvalsdeildina með sigri „Mikil spenna á öllum vígstöðvum“ Sjá meira