Innlent

Gular við­varanir enn í gildi og vegir lokaðir

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Reikna má með að vegum verði víða lokað vegna veðurs.
Reikna má með að vegum verði víða lokað vegna veðurs. Vísir/Vilhelm

Gular viðvaranir eru enn i gildi á Vestfjörðum og nær öllu Norðanverðu landinu vegna hvassviðris og ofankomu. 

Þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eru á svæðinu og slydda eða snjókoma. Akstursskilyrði eru erfið vegna takmarkaðs skyggnis eða snjóþekju, sér í lagi á fjallvegum. 

Gular viðvaranir eru í gildi.veðustofan

Vegir eru víða lokaðir. Lokað er á Þverárfjalli, Mývatns- og Mörðudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði. Ófært er á Hellisheiði eystri og sunnanverðu Snæfellsnesi svo dæmi séu tekin.

Fólki er bent á að kanna aðstæður áður en lagt er af stað í ferðalög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×