Innlent

Fimmtán nýir athafnastjórar hjá Siðmennt

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Hópur nýrra athafnastjóra er nokkuð fjölbreyttur og kemur víðsvegar að. Mörg hafa bakgrunn í sviðslistum og ritlist, en í hópnum er einnig að finna bónda, fjallahjólreiðakappa og dragdrottningu.
Hópur nýrra athafnastjóra er nokkuð fjölbreyttur og kemur víðsvegar að. Mörg hafa bakgrunn í sviðslistum og ritlist, en í hópnum er einnig að finna bónda, fjallahjólreiðakappa og dragdrottningu. haraldur jónasson

Fimmtán nýir athafnastjórar útskrifuðust úr nýliðaþjálfun Siðmenntar á Hellu um helgina. Um er að ræða hóp nema sem hefur verið í þjálfun frá því í vor, en þjálfunin byggði á námskeiðum og handleiðslu.

„Athafnastjórarnir eru nú tilbúnir til að taka að sér athafnir á lífsins tímamótum, svo sem nafngjafir, fermingar og hjónavígslur, en mörg þeirra hafa þegar tekið sín fyrstu skref í sumar,“ segir í tilkynningu. 

Hópurinn er sagður mjög fjölbreyttur og þjónusta Siðmenntar við landsbyggðinga er sögð eflast vil muna, enda séu nú athafnastjórar staðsettir á Patreksfirði, Húsavík, Snæfellsnesi og í Vestmannaeyjum.

Eftirfarandi nýir athafnastjórar hafa nú hafið störf hjá Siðmennt:

  • Bragi Páll Sigurðarson
  • Brynhildur Björnsdóttir
  • Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
  • Íris Stefanía Skúladóttir
  • Kolbeinn Tumi Daðason
  • Margrét Erla Maack
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
  • Matthías Tryggvi Haraldsson
  • Ragnar Ísleifur Bragason
  • Ragnhildur Sigurðardóttir
  • Sigurður Starr Guðjónsson
  • Silja Jóhannesar Ástudóttir
  • Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir
  • Una Sighvatsdóttir
  • Zindri Freyr Ragnarsson Caine



Ragnar Ísleifur Bragason er mest hrifinn af þeirri víðsýni og frjálslyndi sem einkennir athafnir Siðmenntar. Hann útskrifaðist sem athafnastjóri um helgina.bæring jón breiðfjörð
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi á Lambhaga, gefur saman sín fyrstu hjón, sem komu á vegum ferðaskrifstofunnar Pink Iceland.Inga Auðbjörg K. Straumland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×