Úlfarnir ætla ekki að ráða þjálfara fyrr en eftir áramót Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. október 2022 23:00 Bráðabirgaðstjórinn Steve Davis verður við stjórnvölin hjá Úlfunum út þetta ár í það minnsta. Malcolm Couzens/Getty Images Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves ætlar ekki að ráða nýjan þjálfara fyrr en eftir áramót þrátt fyrir að nú séu tæpar þrjár vikur frá því að Bruno Lage hafi verið látinn fara frá félaginu. Bráðabirgðastjórinn Steve Davis mun því stýra liðinu fram á næsta ár.
Davis tók við sem bráðabirgðastjóri liðsins eftir að Lage var látinn taka poka sinn þann 2. október. Síðan þá hefur Davis stýrt liðinu í þremur leikjum þar sem liðið hefur tapað tveim og unnið einn. Úlfarnir hafa verið í viðræðum við tvo mögulega arftaka Lage eftir að Portúgalinn var látinn fara, en báðir hafa þeir hafnað starfinu. Félagið ræddi við Julen Lopetegui, fyrrum þjálfara spænska landsliðsins, og nú síðast Michael Beale, núverandi knattspyrnustjóra QPR. Eftir að hafa fengið nei frá þeim báðum hefur félagið ákveðið að bíða fram á nýtt ár með það að ráða inn nýjan stjóra í starfið. „Við ætlum okkur ekki að flýta okkur um of í leit okkar að nýjum þjálfara og munum ekki gera neinar málamiðlanir í okkar nálgun á því sem við teljum vera hinn fullkomna einstakling fyrir félagið okkar og liðið hér hjá Wolves,“ sagði Jeff Shi, stjórnarformaður Wolves. Úlfarnir eiga enn eftir að leika fimm leiki áður en heismeistaramótið í Katar hefst í næsta mánuði, auk þeirra leikja sem fara fram um jólahátíðina í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport „Ég finn lykt af ótta, ég sé eitthvað í augum hans“ Sport Fleiri fréttir Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Sjá meira