„Annað hvort spiluðu þeir bestu vörn sem hefur verið spiluð eða það var stífla í flautunni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. október 2022 21:38 Pétur Ingvarsson var ánægður með framlag Blika á Hlíðarenda. vísir/vilhelm Pétur Ingvarsson, þjálfari Breiðabliks, hafði ekkert undan framlagi sinna manna í tapinu fyrir Val, 99-90, að kvarta. Annað mál var með dómara leiksins.
Breiðablik var átta stigum yfir eftir 1. leikhluta, 22-30, en dæmið snerist við í 2. leikhluta sem Valur vann, 35-22. „Mig minnir að við höfum fengið fyrstu villuna á Val þegar ellefu sekúndur voru eftir af 2. leikhluta. Annað hvort spiluðu þeir bestu vörn sem hefur verið spiluð eða það var stífla í flautunni,“ sagði Pétur við Vísi í leikslok. „Við hittum kannski ekki nógu vel og leyfðum þeim að komast á áhlaup sem var svo erfitt að ná til baka.“ Blikar voru aldrei langt undan í seinni hálfleik en Valsmenn héngu á forskotinu og unnu á endanum nokkuð öruggan sigur. „Við lögðum upp með að setja orku í þennan leik og leggja okkur fram. Ég get ekki kvartað neitt undan orkunni. Ef þú leggur þig hundrað prósent fram og klikkar á skotum er það bara svoleiðis. Við klikkuðum á sniðsskotum og vítum og það var dýrt í lokin,“ sagði Pétur. „Það hefði komið okkur inn í baráttuna. Við vissum að við gætum alveg náð þeim en það tókst ekki í kvöld. Þetta eru ríkjandi Íslandsmeistarar, mjög gott lið og þeirra heimavöllur. Við erum ennþá bara Breiðablik. Við erum betri en í fyrra en ekki eins og góðir og Valur. Það er alveg klárt mál,“ sagði Pétur að lokum.
Subway-deild karla Breiðablik Valur Mest lesið „Geðveikt að sjá þennan bláa vegg“ Handbolti Gæti enn allt farið fjandans til með fjögurra marka tapi Handbolti Mikilvægir McDonalds borgarar eftir leik: „Biðin hverrar mínútu virði“ Handbolti Sér eftir því sem hann sagði Enski boltinn Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“ Handbolti Myndasyrpa frá sigrinum sem kom Íslandi einu skrefi nær átta liða úrslitum Handbolti „Aron er betri handboltamaður en Óli Stef“ Handbolti HM í dag: Þetta er heimsklassa lið Handbolti „Þeir voru pottþétt að spara“ Handbolti Svona fögnuðu Strákarnir okkar inni í klefa Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Tindastóll - Grindavík | Toppleikur á Króknum Í beinni: Álftanes - KR | Ögurstund fyrir heimamenn? Í beinni: Stjarnan - Haukar | Toppur og botn en allt getur gerst Í beinni: Njarðvík - Höttur | Geta unnið fjórða í röð Leik lokið: Tindastóll - Grindavík 72-80 | Mikilvægur sigur gestanna Hætti 14 ára en á nú leikjametið: „Fannst þær allar mikið stærri og sterkari“ Bragi heim frá Bandaríkjunum Ætla þeir þá að segjast hafa verið að grínast? Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-93 | Grænar betri þegar mest á reyndi Skoraði sína þúsundustu körfu í metleiknum Leikjahæst frá upphafi: „Loksins núna að hætta að gráta, þannig ekki láta mig byrja aftur“ Þór Ak. lagði toppliðið og galopnaði toppbaráttuna Uppgjörið: Valur - Aþena 63-61 | Sluppu með sigur í sögulegum leik Curry bauð gömlu konunni á leik með sér Valur og Keflavík í undanúrslit Uppgjörið: KR - Njarðvík 116-67 | KR-ingar kjöldrógu Njarðvík og fara í undanúrslit „Óvirðing af hæstu stærðargráðu“ „Þeim líður vel að hafa hann í kringum sig“ Pavel stakk upp á áhugaverðum skiptum Kominn úr banni en gleðin enn týnd Ægir: Mjög stórt fyrir klúbba að komast í þessa leiki Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Stjarnan 88-100 | Stjarnan á leið í undanúrslit enn einu sinni Uppgjörið: Ármann - Hamar/Þór 65-94 | Ármenningar engin fyrirstaða Þykir vænst um Skallagrím: „Ástæðan fyrir því að ég er hérna“ Er Jokic bara að djóka? Elvar næst stigahæstur í háspennu sigri Grindavík marði Stjörnuna í lokin „Erum með samfélag sem trúir á okkur“ Njarðvíkingar kláruðu Stólana í lokin Uppgjörið: Þór Ak. - Haukar 94-87 | Þórsarar á leið í undanúrslit annað árið í röð Sjá meira