Leik lokið: Man. City - Brighton 3-1 | Haaland heldur áfram að raða inn mörkum 22. október 2022 16:06 Erling Braut Haaland skorar hér fyrra mark sitt í leiknum í dag. Vísir/Getty Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla í eitt stig með 3-1 sigri sínum gegn Brighton í 11. umferð deildarinnar á Etihad í dag. Erling Braut Haaland skoraði tvö marka Manchester City í leiknum en hann hefur þar af leiðandi skorað 17 mörk í fyrstu 11 deildarleikjum sínum fyrir liðið. Kevin De Bruyne bætti þriðja marki Manchester City við en Leandro Trossard lagaði stöðuna fyrir Brighton. Manchester City hefur 26 stig í öðru sæti en Arsenal trónir á toppnum með stigi meira. Brighton er hins vegar í áttunda sæti með 15 stig. Roberto De Zerbi á enn eftir að ná í sigur sem knattspyrnustjóri Brighton en liðið hefur gert tvö jafntefli og beðið lægri hlut í þremur leikjum í stjóratíð hans. Enski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn
Leik lokið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn