Fótbolti

Everton vann sannfærandi sigur

Hjörvar Ólafsson skrifar
Leikmenn Everton léku á als oddi gegn Crystal Palace í dag. 
Leikmenn Everton léku á als oddi gegn Crystal Palace í dag.  Vísir/Getty

Evrerton heldur áfram að mjaka sér upp töfluna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla en liðið bar 3-0 sigur úr býtum þegar liðið fékk Crystal Palace í heimsókn á Goodison Park í 11. umferð deildarinnar í dag. 

Það voru Dominic Calvert-Lewin, Anthony Gordon og Dwight McNeil sem skoruðu mörk Everton í leiknum. 

Everton er í 11. sæti með 13 stig eftir þennan sigur en Crystal Palace hefur jafn mörg stig og er sæti neðar vegna lakari markatölu. Bournemouth hefur einnig 13 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×