Brahim Diaz kom heimamönnum í forystu strax á 16. mínútu leiksins áður en hann skoraði annað mark sitt og annað mark heimamanna stuttu fyrir hálfleikshlé eftir stoðsendingu frá Divock Origi.
Origi var svo sjálfur á ferðinni eftir um 65 mínútna leik þegar hann kom heimamönnum í 3-0, en Filippo Ranocchia minnkaði muninn fyrir gestina fimm mínútum síðar og staðan því orðin 3-1.
Það var svo Rafael Leao sem gerði endanlega út um leikinn þegar hann kom heimamönnum aftur í þriggja marka forskot á 84. mínútu og niðurstaðan því 4-1 sigur AC Milan.
AC Milan situr nú í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 26 stig eftir 11 leiki, jafn mörg stig og topplið Napoli sem á þó leik til góða. Monza situr hins vegar í 14. sæti deildarinnar með tíu stig.