Sport

Dagskráin í dag: FH getur endanlega bjargað sér frá falli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
FH-ingar eru svo gott sem búnir að bjarga sér frá falli, en geta gulltryggt sæti sitt í deild þeirra bestu í dag.
FH-ingar eru svo gott sem búnir að bjarga sér frá falli, en geta gulltryggt sæti sitt í deild þeirra bestu í dag. Vísir/Bára

Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem boðið verður upp á hvorki meira né minna en 19 beinar útsendingar frá morgni og langt fram á kvöld.

Stöð 2 Sport

Fram tekur á móti FH í næstsíðustu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu klukkan 13:50 í leik þar sem FH-ingum nægir jafntefli til að tryggja endanlega áframhaldandi veru sína í deild þeirra bestu.

Klukkan 16:45 færum við okkur svo yfir í Garðabæinn þar sem Stjarnan tekur á móti KA áður en Stúkan tekur við klukkan 19:00 þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð í Bestu-deildinni.

Klukkan 20:00 verður Seinni bylgjan svo á dagskrá þar sem Svava Kristín Grétarsdóttir og aðrir sérfærðingar fara yfir allt það helsta úr Olís-deild kvenna í handbolta.

Stöð 2 Sport 2

Boðið verður upp á bland í poka á Stöð 2 Sport 2 þar sem við hefjum leik á viðureign Barcelona og Lenovo Tenerife klukkan 10:20 í spænsku ACB-deildinni í körfubolta.

Klukkan 12:50 er svo komið að viðureign Bologna og Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Við færum okkur svo yfir til Bandaríkjanna klukkan 17:00 þar sem Cincinnati Bengals og Atlanta Falcons eigast við í NFL-deildinni í amerískum fótbolta áður en San Francisco 49ers og Kansas City Chiefs etja kappi klukkan 20:20.

Stöð 2 Sport 3

Þrír leikir í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru á dagskrá á Stöð 2 Sport 3 í dag. Udinese tekur á móti Torino klukkan 10:20, Lazio heimsækir Atalanta klukkan 15:50 og Roma tekur á móti Napoli klukkan 18:35.

Þá er Íslendingaslagur í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar Kristianstad tekur á móti Rosengård klukkan 12:55.

Stöð 2 Sport 4

Subway-deild kvenna í körfubolta á sviðið á Stöð 2 Sport 4. Klukkan 18:05 tekur ÍR á móti Breiðablik áður en Haukar og Njarðvík eigast við klukkan 20:05 í stórleik umferðarinnar.

Stöð 2 Sport 5

Mallorca Golf Open á DP World Tour heldur áfram klukkan 10:30 og lokadagur The CJ Cup hefst klukkan 18:30.

Stöð 2 eSport

Haustmót BLAST premier mótaraðarinnar klárast í kvöld með tveimur úrslitaleikjum. Upphitun fyrir leikina hefst klukkan 17:00, úrslitin í Evrópuriðlinum hefjast klukkan 17:30 og úrslitin í Ameríkuriðlinum hefjast klukkan 20:30.

https://stod2.is/framundan-i-beinni/




Fleiri fréttir

Sjá meira


×