Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði
![Verðlækkun bréfanna í viðskiptunum í morgun endurspeglar væntingar um að eigendur þeirra þurfi að taka á sig veruleg afföll – líklegast meira en 100 milljarða króna – eftir að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðaði að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð með sérstakri lagasetningu.](https://www.visir.is/i/15D61F759A7D8B341E6DB6C76DAF1E7DFB7E68727441FCC0EBCE3A96183A92B7_713x0.jpg)
Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/1CA5067660147BE2BC6446E2E77F693FB90E229CF6B99A033F8FA56831A642B4_308x200.jpg)
Lífeyrissjóðir þurfa að „taka á sig högg“ vegna slita á ÍL-sjóði
Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
![](https://www.visir.is/i/5D65DB0B1DC1BA1DC06D36685D84A9641254D214BC10C3D828320765CDD4423F_308x200.jpg)
Fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði fara með rangt mál
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga.